«

»

Molar um málfar og miðla 1722

 

Molaskrifari tekur nú upp þráðinn að nýju. Kannski verða Molarnir strjálli. Sjáum hvað setur.

Molaskrifari þakkar vinum í netheimum af heilum hug einlægar samúðarkveðjur og hlý orð undanfarna daga.

 

Helgi Haraldsson prof.emeritius í Osló benti á eftirfarandi frétt af mbl.is (07.05.2015): Hann segir: ,,Málið auðgast”
http://www.mbl.is/folk/frettir/2015/05/07/blodug_slagsmal_i_kuluspili/
 :

„Upp­hafs­menn­irn­ir enduðu á slysa­deild eft­ir að högg sem þeir fengu en reynt var að þaga um at­vikið…” Molaskrifari þakkar Helga ábendinguna.

,,Fjórar magnaðar konur í tónlist stíga á stokk – fjórir laugardagar!”

Þetta er fyrirsögn úr fréttabréfi og fjölpósti Listahátíðar í Reykjavík (08.05.2015).

Átt er við, að fjórar magnaðar konur ætli að stíga á svið, ætli að koma fram. Það er slæmt, að þeir sem skrifa fréttabréf Listahátíðar skuli ekki betur að sér en þessi fyrirsögn gefur til kynna. https://mail.google.com/mail/u/0/?shva=1#inbox/14d335fed026ad72

 

Í miðnæturfréttum Ríkisútvarps (23.05.20159 laugardag fyrir hvítasunnu voru þrjár fréttir. Já, þrjár fréttir.

1. Svíþjóð vann. Fáir sem ekki vissu það. Var áfram fyrsta frétt langa lengi.

2. Kvikmyndin Hrútar hlaut verðlaun í Cannes. Margsinnis búið að segja frá því áður.

3. Gömul frétt um yfirvofandi verkfall á Landspítalanum.

Alvöru fréttastofa?

 

Greint var frá andláti Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, á forsíðu Morgunblaðsins þriðjudaginn 19. maí.

Halldór var lengi í forystuhlutverki í íslenskum stjórnmálum; ráðherra  í 19 ár; varaformaður og formaður Framsóknarflokksins í meira en aldarfjórðung. Í morgunfréttum Ríkisútvarpsins klukkan 06 00 þennan dag var fyrsta fréttin um andlát Halldórs. Það var rétt fréttamat.

Í upphafi Morgunútgáfu Ríkisútvarpsins hálfri stundu síðar var ítarlegt fréttayfirlit. Þar var ekki minnst einu orði á að fyrrverandi forsætisráðherra landsins væri fallinn frá, ,- óvænt og um aldur fram. Í fréttum klukkan sjö var fregnin um andlát Halldórs Ásgrímssonar fyrsta frétt. Í átta fréttum Ríkisútvarpsins var fyrsta frétt hins vegar um að Reykjavíkurborg hefði brugðist eftirlitshlutverki sínu gagnvart Ferðaþjónustu fatlaðra. Löngu vitað. Ekki nýtt.

Dómgreindarbrestur og/eða fagleg fákunnátta?

Það var líka dómgreindarbrestur að hefja ekki sjónvarpsfréttir þetta kvöld á því að segja frá andláti fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Og hversvegna þurfti Ríkissjónvarpið að endurbirta spádóm hans um aðild Íslands að ESB árið 2015? Molaskrifara fannst eiginlega eins og verið væri að gera lítið úr Halldóri með þessari tilefnislausu tilvitnun.

Kannski er dómgreind og fréttamat Molaskrifara bara gamaldags.

Molaskrifari átti langt og farsælt samstarf við Halldór Ásgrímsson á Alþingi og seinna í utanríkisráðuneytinu, þegar Halldór réði þar húsum. Á það samstarf bar aldrei skugga. Mér reyndist Halldór Ásgrímsson drengur góður í einu og öllu.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>