«

»

Molar um málfar og miðla 1740

Rafn benti á þessa frétt á mbl.is (18.06.2015) og spyr: ,, Hvað eru „Frönskurnar“ (samanber fyrirsögn)?? og hvað eru „franskarnar“ (samanber meginmál)??” ,,Frönskurnar seldust upp”. Í fréttinni segir: „Sal­an var bara meiri en fram­leiðslan og við þurft­um að taka okk­ur pásu til þess að út­búa meira,“ seg­ir Friðrik Dór, tón­list­armaður og einn eig­anda nýja frönsk­ustaðar­ins „Reykja­vík Chips.“ Staður­inn var opnaður í gær, á þjóðhátíðardag­inn, og fransk­arn­ar seld­ust upp á aðeins fjór­um klukkustundum

.http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2015/06/18/fronskurnar_seldust_upp/

 

Það er engu líkara en orðalagið fram á sumar sé að hverfa , eða eigi undir högg að sækja. Hvað eftir annað heyrist sagt inn í sumarið. Síðast heyrði skrifari þingmann nota þetta orðalag um starf þingnefndar í viðtali á Bylgjunni á fimmtudag (18.06.2015).

 

Svo virðist sem framburðurinn /evvsta/ á orðinu efsta sé í sókn. Þetta heyrist aftur og aftur, ekki síst í íþróttafréttum.

 

Í íþróttafréttum Ríkissjónvarps (20.06.2015) var sagt: Betur fór þó á en horfðist ….  Þarna hefði skrifari sagt: Betur fór þó en á horfðist. Fyrr í fréttum þetta sama kvöld var sagt: Fari svo sem á horfir … Þarna hefði til dæmis mátt segja: Fari svo sem horfir ….

 

Stærsta tónlistarhátíð, sem haldin hefur verið hér á landi, lýkur brátt í Laugardalnum ….  Þetta las fréttaþulur Stöðvar tvö viðstöðulaust og án þess að hika í fréttatímanum á sunnudagskvöld (21.06.2015).

Stærsta tónlistarhátíðin lýkur ekki. Stærstu tónlistarhátíðinni lýkur.

Skrítið að heyra þetta ekki og leiðrétta.

 

Í fréttum af manndrápunum í kirkjunni Em­anu­el African Met­hod­ist Ep­iscopal Church í Charleston Í Suður Karólínu var ítrekað sagt að einn þeirra sem þar var skotinn hefði verið öldungadeildarþingmaður. Það hefði mátt fylgja að sá sem hér var rætt um Clementa Pinckney var öldungadeildarþingmaður í senati eða öldungadeild Suður Karólínaríkis.

 

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>