Í seinni fréttum RÚV sjónvarps eitt kvöldið í vikunni var fjallað um breytingu á mönnun neyðarbíla Landspítalans á höfuðborgarsvæðinu en læknar verða hér eftir ekki lengur með í för. Ábúðarmikill fréttamaður stilliti sér upp við bækistöð bílanna og sagði efnislega um leið og neyðarbíll ók út með blikkandi ljós …. og nú er hann að fara í útkall hugsanlega upp á líf og dauða ! Dramatískt. Gallinn var bara sá að þetta var of vel tímasett til að vera raunverulegt og þar að auki sá ég ekki betur en bíllinn stansaði í lok myndskeiðsins.Hann var ekkert á leiðinni í útkall, hvað þá að um líf og dauða væri að tefla. Þetta var sem sé sviðsett blekking , að minnsta kosti sá ég ekki betur.
Svona kjánaskapur ætti að vera fyrir neðan virðingu Ríkisútvarpsins – Sjónvarps.
Það á ekki að blekkja áhorfendur.
Skildu eftir svar