«

»

„Tveggja viðtala frétt“ hjá RÚV

Mótmæli unglinganna í Helguvík urðu fréttastofu Ríkisútvarpsins tilefni að  langri frétt með  tveimur  viðtölum. Þetta  er auðvitað fréttamat , sem er út úr kú. Það er alltaf auðvelt  að sjá hvar samúð fréttastofunnar liggur  , samanber   „Gangi ykkur vel!“ viðtalið  fyrir  framan  dómsmálaráðuneytið.  Fagmannlega unnin hefði  fréttin getað verið svona:

„Hópur ungs fólks mótmælir nú  byggingu álvers í  Helguvík og hefur  stöðvað framkvæmdir þar. Fólkið hefur  sumt  hlekkjað sig  við  vinnuvélar og klifrað upp í byggingarkrana.  Lögreglan   er á   svæðinu og  ræðir  við mótmælendur. Ekki hefur    hefur  komið  til neinna átaka“ Svona til dæmis  hefði fréttin átt að vera.

Þetta er kjarni málsins. Fréttastofan kaus  að fjalla um málið með sínum hætti.

Það var  svo   athygisvert að talsmaður mótmælendanna  talaði um að  „klifra krana“. Þetta eru líklega slæm  málfarsleg áhrif á  frá hinum erlendu  mótmælendum . Á  ensku er  hægt að tala um  „to  climb a crane“, rétt eins og  sagt er  „to  climb a tree“. Við  tölum  ekki um að klifra tré.

það er óþarfi að apa allt  eftir útlendingum.

mbl.is Mótmæli í Helguvík friðsamleg

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>