Samlíkingin Norður Ameríka=Norður Kórea er hreint ekki svo fráleit þegar grannt er skoðað. Rétt er þó að undanþiggja Kanada. Við komuna til Pyongyang höfuðborgar Norður Kóreu eru farsímar teknir af ferðalöngum og ekki afhentir fyrr en við brottför úr landinu. Það hefur sá sem þetta skrifar upplifað.
Svo virðist hinsvegar af fréttum að dæma að bandarísk yfirvöld geti látið geðþótta ráða því hvort ferðamenn fái aftur fartölvur sem teknar eru af þeim við komuna til landsins.
Þetta er ótrúlegt í landinu sem stundum hefur verið nefnt „vagga frelsisins“.
![]() |
Mega haldleggja fartölvur |
Skildu eftir svar