Svolítið var sérkennilegt að heyra fréttamann ríkissjónvarpsins segja horfendum/hlustendum að múgur og margmenni hafi verið á bryggjunni í Sandgerði ,þegar Landhelgisgæslumenn sigldu báti kvótalausa sjómannsins til hafnar. Fréttamyndirnar sýndu hinsvegar örfáar hræður á bryggjunni.
Það er svo sjálfsagt einhverjum umhugsunarefni að fjölmiðlar hafa sagt alþingismann hafa aðstoðað sjómanninn sem var að brjóta lög við að landa aflanum. Rétt eins og það líka er athyglisvert að annar alþingismaður lýsti aðdáun sinni á lögbrotum hinna svonefndu „saving Iceland“ ungmenna.
En aftur að „múgnum og margmenninu“. Það er ekki nýtt að orð og myndir falli ekki mjög vel saman í sjónvarpsfréttum. Sá sem þetta ritar minnist þess að eitt sinn fyrir ævalöngu er hann var að lesa frétt í sjónvarpi um hafnargerð í Neskaupstað og sýnd var mynd af framkvæmdunum. Í textanum sagði: „Unnið er að hafnargerðinni með stórvirkum vinnuvélum“. Á skjánum birtist hinsvegar mynd af fullorðnum manni á bryggjunni með skarexi,sem var að höggva til svolítinn spýtukubb. Þá var erfitt að verjast hlátri.
Skildu eftir svar