Norðmenn eru frábærir og geta verið bráðskemmtilegir. Þeir hafa mjög sérstaka sýn á sögu sína , – og okkar. 1993 var til dæmis sýning í Ríkislistasafninu í Osló af myndum af norskum listamönnum. Númer eitt á sýningunni var brjóstmynd af Snorra Sturlusyni !
Nokkru síðar kom út ritröð hjá einu stærsta útgáfufyrirtæki Noregs undir heitinu: Meginstoðir norskra bókmennta. Númer eitt í bókaflokknum var Njála, — í norskri þýðingu !
Í Smugudeilunni veiddu íslensk skip löglega á alþjóðlegu hafsvæði og sættu stöðugri áreitni Norðmanna. Þá var þeim sagt að , ef við fengjum ekki að stunda löglegar veiðar í friði , þá mundum við bara flytja til baka ! Það fannst þeim ekkert fyndið.
Sagt er að mannkynið sé komið af öpum,- nema Íslendingar. Þeir séu komnir af Norðmönnum. Þetta finnst Norðmönnum heldur ekkert fyndið !
Norðmenn draga Íslendinga sundur og saman í háði | |
1 athugasemd
Ekkert ping ennþá
Heidi Strand skrifar:
24/10/2008 at 13:06 (UTC 0)
Mér finnst það ekki heldur.
Margir verður af eyrunum api.Það var ekki gaman að koma til Noregs á meðan deilan um Smutthullet stoð. Það verður heldur ekki gaman að koma aftur eftir að norðmenn hafa tapað innistæðum sinum hjá Kaupþingi. Þetta er í fyrsta sinn þetta hefur gerist frá seinni stríð. Flestir fá bætt innistæðum frá norska ríkið, en það er bara upp að 2 millur norskar á reikning og 60 manns tapar sinu.