«

»

Sigurður Kári og Ólafur Ragnar

Rétt er  að vekja athygli á ágætri grein  Ólafs  Sigurðssonar fyrrverandi varafréttastjóra  Sjónvarps á bls.  28 í Fréttablaðinu í dag þar sem   Ólafur  vekur  athygli á  furðulegri  fullyrðingu   alþingismannsins  Sigurðar Kára  Kristjánssonar.

  Þingmaðurinn  sagði í  útvarpsþætti  nýlega, að á  fyrstu árum  Sjónvarpsins  hefðu  ráðherrarnir  samið  spurningarnar fyrir okkur fréttamennina. Nú veit ég ekki alveg hvernig  Sigurður Kári  kemst að þessari niðurstöðu.  Varla  hefur hann séð  mörg   viðtöl í fréttum  fyrstu  sjónvarpsáranna.  Hann fæddist nefnilega ekki fyrr en tæplega  sjö   árum eftir    Sjónvarpið  tók  til  starfa.

Þetta er  auðvitað rakinn  óhróður. Rakalaus  sleggjudómur og rugl  eins og  Ólafur   Sigurðsson rekur svo ágætlega.

En  Sigurður  Kári  er    í  góðum félagsskap þegar  hann heldur   þessari  staðleysu fram.

Í  viðtali á  40 ára  afmæli Sjónvarpsins   sagði  Ólafur Ragnar Grímsson   forseti Íslands að  sjónvarpið  hefði fyrstu  árin  bara verið  “þjónustustofnun við þá  sem réðu landinu” og  viðtöl  við ráðamenn  hefðu verið  tekin aftur  og  aftur   þangað  til þeir  voru ánægðir með útkomuna.   Síðan hefði hann  komið  og  gjörbreytt  Sjónvarpinu.   Þessum þvættingi Ólafs Ragnars   gerði ég nokkur  skil  í  2. hefti 3. árgangs tímaritsins Þjóðmála.

Það er kannski  ástæða  til að óska  Sigurði Kára  til hamingju með félagsskapinn,  en ég held ég láti það vera.

 

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Flosi Kristjánsson skrifar:

    Vera má að stjórnmálamenn hafi ekki haft bolmagn til þess að semja eða láta semja „réttar“ spurningar fyrir viðtölin.

    Hitt er til skjalfest, og það veit forseti lýðveldisins fullvel, að þeir sem voru nógu meðvitaðir um tæknimálin, eins og hann var örugglega, gátu stjórnað viðtölunum. Ég held mig misminni ekki að hann, sem fjármálaráðherra, hafi í viðtali framan við Arnarhvál, stoppað upptöku á viðtali vegna þess að hann hafði tafsað eða tvítekið eitthvað. „Stopp, stopp! Byrjum aftur!“  Cut! sega leikstjórarnir.

    Man einhver eftir þessu?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>