Það er með ólíkindum hve margir misskilja Ólaf Ragnar Grímsson
Stutt er síðan forsetaskrifstofa skýrði frá því,að BBC hefði misskilið Ólaf Ragnar. Meiri aularnir hjá BBC. Geta ekki einu sinni haft rétt eftir manni !
Nú misskilja margir fleiri forsetann skv. þessari frétt Morgunblaðsins.
“Ólafur Ragnar segir að sjálfskipaðir álitsgjafar og fræðimenn sem tjáð hafi sig um orð hans síðan í gær hafi ekki réttan skilning málinu.”“Ummæli um þingrofsréttinn misskilinnÓlafur Ragnar Grímsson segist telja að það gæti einnig misskilnings með orð hans frá því í gær um þingrofsréttinn”
Það er heint ekki einleikið hve margir misskilja manninn !
Ólafur Ragnar: Vildi upplýsa þjóðina | |
9 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
J.þ.A skrifar:
28/01/2009 at 12:58 (UTC 0)
Í mínum skólabókum fór það ekkert á milli mála hvernig stjórnarskráin er túlkuð. það er ekki fyrr en eftir að lögfræðingar og hagfræðingar sem hafa verið skrifaðir út á færiböndum með misjafnan orðstír síðustu ár,og flokksskírteini upp á vasann að ekkert sé að marka hana. Það verður að segjast að lítið leggst fyrir kappanna. Kannski fer að aukast að gera hjá þeim núna þegar sótt verður að alþýðu, og rifnar af þeim eignirnar í þágu útrásarvíkinga og fyrrv. ríkisstjórnar, og Davíðs&co
Þráinn Bertelsson skrifar:
28/01/2009 at 11:16 (UTC 0)
Af hverju er þér illa við Ólaf Ragnar? Hann er alveg jafnhégómlegur og þú.
Ómar Ragnarsson skrifar:
28/01/2009 at 00:45 (UTC 0)
Bíð spenntur eftir því hvað kemur út úr setningunni „meira síðar.“
itg skrifar:
27/01/2009 at 23:45 (UTC 0)
Ok…enda danir ekki skandinavar???…er þetta info sem þarf eitthvað sérstaklega að bíða með Eiður?
Eiður skrifar:
27/01/2009 at 20:22 (UTC 0)
Daginn þann var töluð enska í danska sendiráðinu,enda voru Skandinavar þar í minnihluta. Meira um það síðar.
ásdís skrifar:
27/01/2009 at 20:09 (UTC 0)
Fyrst stjórnarskiptin eru afleiðing grjótkasts, og grjótkastararnir komnir með þá stjórn sem þeir vildu, liggur þá ekki beint við að nefna nýju stjórnina Grjótkastarastjórnina?
itg skrifar:
27/01/2009 at 19:03 (UTC 0)
Misskyldu ekki skandinavarnir hann í danska sendiráðinu hann líka í fyrra?
Villi Asgeirsson skrifar:
27/01/2009 at 15:04 (UTC 0)
Hefurðu lesið íslenskar fréttir undanfarið? Kemur þér á óvart ef fréttafólk eru ekki alveg með á nótunum?
Ari Kolbeinsson skrifar:
27/01/2009 at 14:41 (UTC 0)
Þegar flókin mál eru rædd er alltaf hætta á að hlutir komi vitlaust út úr ræðumanni, hann klúðri, misskilji. Síðan getur viðmælandinn líka misskilið, misheyrst o.s.frv.
Ólafur er pólitíkus, en ég held samt að hann sé að gera það sem hann telji rétt.
Aukið upplýsingaflæði um hvað er í gangi getur ekki verið af hinu slæma.