«

»

Molar um málfar XVII

Eftirfarandi setning  er á  vefmogga í  dag:

 

Það er hörmulegt að lesa það í dagblaði eftir forsætisráðherra, að það sé farið með slíka staðlausa starfi á prenti,“ sagði Geir þegar umræða hófst um stjórnlagafrumvarpið á ný á Alþingi í dag.

 

Hér er eitthvað sem ekki stemmir.  Efast  reyndar stórlega  um að Geir H. Haarde  hafi orðað þetta   eins og  blaðamaður skrifar. Líklega er  meiningin sú    hörmulegt sé að  forsætisráðherra  skuli  fara með  staðlausa  stafi sem  síðan komist  á prent.  Skýrt er hugsunin ekki orðuð.

 

Meira  af vefmogga í dag. Verið var að  segja frá  sýningu í Amsterdam: „Myndir þú fela gyðing frá nasistum?”. Það er ekkert til á íslensku sem  heitir að  „fela  frá “. Við felum eitthvað  fyrir  einhverjum. Betri hefði þessi  setning   verið  svona: Mundir þú fela  gyðing fyrir nasistum? Ef til vill er  sögnin    forða með  forsetningunni  frá    rugla  skrifara  í þessu  tilviki. Spyrja hefði mátt:  Mundir þú  forða  gyðingi frá nasistum?

 Erfiðlega gengur mönnum  að beygja orðið  fé. Á dv. is  mátti lesa í kvöld: „Um var ræða eftirstöðvar ráðstöfunarfés frá fyrra  ári…”.   Eignar fallið  af fé  er auðvitað    fjár, ekki  „fés”. Þessi sama beygingarvilla var á  dv. is í fyrradag. Sennilega er  sami bögubósinn að  verki í báðum fréttum. Það væri gaman að  sjá fésið á honum.  

 

Ráðherra sem  er einna best  máli farinn allra  sem á Alþingi, sitja brá fyrir sig  kansellístíl  nútímans í dag þegar hann talaði um að „setja fyrirtæki í söluferli”. Einfaldara hefði verið að tala um að  selja  fyrirtæki.

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Ásláttarvillan í tilvitnaðri setningu er ekki mín.

  2. Svanur Gísli Þorkelsson skrifar:

    „…staðlausa starfi á prenti,“ Eflaust meinleg ásláttarvilla hjá þér eða blaðamanni.

    Og átti þetta kannski að vera; Mundir þú fela gyðing fyrir nasista?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>