Alþingismönnum, sem öðrum, lætur misvel að tjá sig í rituðu máli. Eftirfarandi las ég á þingmannsbloggi í gærkveldi: ,,Útvaldir gæðingar inni í bönkunum sem stýrt er af pólitísk skipuðum bankaráðum er ætlað það hlutverk að ákveða hverjir fái afskriftir á sínum lánum.“ Hér ætti í fyrsta lagi að standa – Útvöldum gæðingum og svo eru bankaráðin ekki ,,pólitísk skipuð“, heldur pólitískt. Þetta er dæmi um það sem svo oft sést . þegar komið er fram í miðja setningu man skrifari ekki lengur hvaðan hann lagði af stað. Það mætti raunar gera fleiri athugasemdir við tilvitnaða setningu.
Benedikt spurði í athugasemd við síðustu Mola hvað mér fyndist um það er stjórnmálamenn sífellt tala um að ,,taka umræðu“ um eitthvert mál. Eins og þér, Benedikt, finnst mér þetta ótækt orðalag, – alveg jafnslæmt og þegar stjórnmálamenn segja að framundan séu ,,stórar ákvarðanatökur“. Veit eiginlega ekki hvort er verra.Sem ég setti punktinn aftan við þessa setningu sagði þulur RÚV í dagskrárkynningu, að sagt yrði frá fyrstu póstferðinni ,,alla leiðina frá Reykjavík til Akureyrar“. Ef póstferð hefur verið farin frá Reykjavík til Akureyrar hefur hún að sjálfsögðu verið farin alla leiðin, ekki hálfa leiðina !
Nefnifallssýki breiðist út. Í íþróttafréttum RÚV í hádeginu las íþróttafréttamaður:,,… en tíminn nægði henni til að tryggja sér sæti á heimsmeistaramótinu í sumar eins og Ragnheiður Ragnarsdóttir…“
Svo þakka ég enn og aftur jákvæð við brögð við þessum ábendingum og hugleiðingum.
3 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Sverrir Einarsson skrifar:
22/03/2009 at 13:07 (UTC 0)
Bragð er að þá barnið finnur. Stendur þetta ekki einhverstaðar, ég kann ekki mikið í Íslensku hvorki rit né talmáli.
En þegar ég er farinn að sjá og heyra ambögur þá er eitthvað mikið að.
Takk fyrir góða pistla.
Júlíus Valsson skrifar:
22/03/2009 at 10:36 (UTC 0)
Heyrðu! Þetta var smá djók. Ég var bara að herma eftir henni Guðrúni.
Júlíus Valsson skrifar:
22/03/2009 at 10:32 (UTC 0)
Æðislegt! Ég hef ekki mikið spáð í þessu, en ef það gengur eftir og Guð gæfi að gott á veitir, þá er er það líkasti því að klóra í bakafullan lækinn.