Hvar eru tölurnar sem styðja það rökum að Álftanesvegurinn núverandi sé með allra hættulegustu vegarspottum á landinu eins og hvað eftir annað er látið liggja að eða fullyrt? Bæjarstjóri Garðabæjar talaði um slysahættu á Álftanesvegi í sjónvarpsviðtali fyrir nokkru, en ráðlagði fólki jafnframt að skoða Gálgahraunið út um bílglugga! Varla eykur það umferðaröryggið!
Hversvegna veifar ekki vegamálastjóri þessum tölum? Ég hef aldrei heyrt hann nefna þær. Ekki aðra heldur. Hvað segir Samgöngustofa? Heldur hún ekki utan um svona gögn? Það er bara sagt að vegurinn sé hættulegur. Með sama hætti má segja að allir vegir séu hættulegir.
Getur verið að þessar tölur séu ekkert í umræðunni vegna þess að þessi stutti vegur sé ekkert sérlega hættulegur? Þær hættur sem þar kunna að leynast er afar auðvelt að laga án þess að kasta þúsund milljónum af fé skattborgara (ekki bara Garðbæinga) í nýjan veg eftir endilöngu Gálgahrauni og valda óafturkræfum náttúruspjöllum. Ein blindhæð er á veginum, – hana er ekki flókið mál að laga. Árekstur varð á Álftanesvegi í gær, skammt frá Engidalsvegamótum. Það var bara venjuleg aftanákeyrsla sem hafði ekkert með legu eða ástand vegarins að gera. Meirihluti umferðaróhappa verður vegna ástands ökumanna,eða ökutækja ekki vegna ástands veganna. Sívaxandi fjölda slysa í umferðinni má nú rekja til þess að ökumaður er að rýna í leiðsögutæki, tala í síma eða senda smáskilaboð. Það breytist ekki þótt þúsund milljónir séu settar í nýjan veg.
3 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
27/09/2013 at 12:18 (UTC 0)
Takk, – tek undir með þér. K kv Eiður
Egill skrifar:
26/09/2013 at 15:32 (UTC 0)
Bendi á fróðlega grein.
Góð röksemdafærsla!
http://www.andrisnaer.is/?p=963
Eiður skrifar:
24/09/2013 at 16:45 (UTC 0)
Mér hefur verið bent á mjög athyglisverða grein í Læknablaðinu 2012/98
http://www.laeknabladid.is/media/tolublod/1540/PDF/f04.pdf
Greinin heitir: Slys á hættulegustu vegum landsins og er eftir Þórodd Bjarnason félagsfræðing og Svein Arnarsson félagsfræðinema. Heiti greinarinnar skýrir efnið. Ekki verður séð að Álftanesvegur kom þar nokkuð við sögu. Ég get ekki sé að hann sé nefndur. Allt tal um að vegurinn sé stórhættulegur á því ekki við rök að styðjast samkvæmt rannsóknum á umferðarslysum.