«

»

Molar um málfar og miðla 1673

Molavin skrifaði: „Tók þrjú ungmenni af lífi“ segir í fyrirsögn Morgunblaðsfréttar (11.01.2015) af Bandaríkjamanni, sem myrti þrjú múslímsk ungmenni. Af fyrirsögninni mátti skilja að um aftöku dæmdra hefði verið að ræða en ekki fólskuleg morð. – Rétt athugað, Molavin. Molaskrifari þakkar ábendinguna.

 

Í Bylgjufréttum klukkan níu (10.02.2015) var sagt: Hálka og hvassviðri eru víða um land. Molaskrifari hefði sagt: Hálka og hvassviðri er víða um land.

 

Af dv.is (10.02.2015): Ljóst er af listanum yfir þá muni sem þau fjarlægðu, að það var engu til sparað við innréttingu heimilisins.

Hér finnst Molaskrifara tvennt vera athugavert. Í fyrsta lagi er ruglað saman (nokkuð algengt, reyndar) tveimur föstum orðasamböndum. Ekkert til sparað. Engu til kostað. Í öðru lagi er hús ekki sama og heimili. Hús eru innréttuð. Heimili eru ekki innréttuð.

http://www.dv.is/frettir/2015/2/10/rifu-ut-innrettingar-fyrir-fjortan-milljonir/

 

Meira af dv.is sama dag: ,,Ómar segist hafa brugðið við að sjá hræin og hringt strax á lögregluna á Akureyri en fengið engin viðbrögð.”

Ómar segir að sér hafi brugðið við að sjá hræin, hefði þetta til dæmis getað verið. Einnig: Ómar segir að sér hafi verið brugðið við að sjá hræin, eða; Ómar segir sér hafa brugðið við að sjá hræin. Engir ritsnillingar þarna á ferð. http://www.dv.is/frettir/2015/2/10/fann-ruslagam-fullan-af-daudum-dyrum/

 

Fyrirsögn af visir.is (10.02.2015): Notaður reiðbúnaður stöðvaður í tollinum. Orðið reiðbúnaður hefur Molaskrifari ekki heyrt áður. Í fréttinni kemur fram að þetta var reiðfatnaður og reiðtygi.

http://www.visir.is/notadur-reidbunadur-stodvadur-i-tollinum/article/2015150219947

 

Með reglulegu milli verður Ríkisútvarpið okkar heltekið, alveg gegnsýrt af einhverju, og þess sér merki daginn út og daginn bæði í dagskrá útvarps og sjónvarps. Oftast eru þetta íþróttir. Alltaf boltaíþróttir. Stundum er það popp. Nú er það söngvakeppnin Evróvisjón , sem er hamrað á daginn út og daginn inn.

Á miðvikudagsmorgni hlustaði skrifari um skeið á morgunþátt Bylgjunnar. Skipti síðan yfir á Morgunútgáfu Ríkisútvarpsins. Þar var þá verið að fjalla um Evróvisjón söngvakeppnina. Nema hvað!

Þetta gengur yfir. Blessunarlega, fyrir þá sem engan áhuga hafa á þessu. En ekki verður langt í að eitthvað annað taki við! Maður verður bara að láta þetta yfir sig ganga! Gerir kannski lítið því úr svo mörgu góðu er að velja í sjónvarpi eftir öðrum leiðum með tækni nútímans. Tækni sem var óhugsandi, þegar sjónvarp hófst hér fyrir tæplega hálfri öld.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

 

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Rétt, rétt. SO.

  2. Sigurður Oddgeirsson skrifar:

    ,,Ómar segist hafa brugðið við að sjá hræin og hringt strax á lögregluna á Akureyri en fengið engin viðbrögð.”
    Hérna þarf líka að breyta lokaorðunum. (Að fá engin … og viðbrögð daga uppi). Ætti að vera: „… og engin viðbrögð fengið.“ Stundum þarf að gæta að orðaröð.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>