Molavin skrifaði (05.05.2015): „RÚV bætir þjónustu við börn með Krakka RÚV“ segir á Fasbókarsíðu Ríkisútvarpsins. Það sem áður hét Barnatíminn verður þá væntanlega nefnt Krakkatíminn. Það var blæbrigðamunur á merkingu orðanna börn og krakkar (fór svolítið eftir þægð), sem kom fram í máltækinu „börnin mín á morgnana og krakkarnir á kvöldin.“ Það færi vel á því að sjálft Ríkisútvarpið legði rækt við auðugt málfar í stað þess að nota aðeins „strákar, stelpur og krakkar“ um þau. Stofnunin á að vera til fyrirmyndar um málfar, ekki elta lágkúruna.” Mæl þú manna heilastur, Molavin. Þakka bréfið.
Trausti benti á þessa frétt á mbl.is , (07.05.2015) http://www.mbl.is/frettir/erlent/2015/05/06/neita_ad_greida_allan_reikninginn/
Í fréttinni segir: ,,Audi-bílaumboð í Watford á Englandi neitar að greiða reikning sem hljóðar upp á ríflega 700 pund sem kona fékk eftir að hafa snætt á veitingastað í Lundúnum, en umboðið hafði boðist til að bjóða henni og einum gesti út að borða eftir að hafa ollið skemmdum á bifreið sem hún hafði keypt. “
Hann spyr: Er sögnin „að olla“ nú búin að yfirtaka hlutverk sagnarinnar „að valda“? Ekki er nema von að spurt sé. Notkun sagnarinnar að valda vefst fyrir mörgum fréttamönnum.
Skúli benti á þessa frétta á visir.is (04.05.2015) og segir: ,,Sæll. ….eiða miklum tíma saman…… Eru engin takmörk fyrir vitleysunni? Fréttabörn……
Í fréttinni segir:
Ég mun alltaf muna eftir tímum okkar saman en því miður þá gera aðstæður okkur ekki kleift að eiða miklum tíma saman.
http://www.visir.is/tiger-woods-og-skidastjarnan-lindsey-vonn-haett-saman/article/2015150509842
Molaskrifari þakkar Skúla ábendinguna.
Það er ekkert nýtt að framburður heitis bandaríska ríkisins Arkansas vefjist fyrir fréttamönnum. Nú síðast á miðvikudag (06.05.2015). Þá var í morgunfréttum Ríkisútvarps ítrekað talað um /arkansás/ – ekki /a:knaso/ Vitleysisframburðurinn /arkansás/ var endurtekinn í hádegisfréttum, en einnig heyrðist /arkansas/ sem er gamall draugur,sem erfitt virðist að kveða niðu .
Molaskrifari hefur verið slakur lesandi og hlustandi undanfarna daga , en lætur ekki hjá hlýða að þakka Speglinum í Ríkisútvarpinu fyrir mjög athyglisverða umfjöllum um málefni vinnumarkaðar, samningagerð og vinnulag á Norðurlöndunum. Bæði á það við um viðtal Jóns Guðna Kristjánssonar við Göran Persson fyrrverandi forsætisherra Svíþjóðar og umfjöllun Arnars Páls Haukssonar í sama þætti í kvöld og í gærkvöldi um stöðu mála og vinnulag í Danmörku. Mjög fróðlegt. En auðvitað vita bæði samtök launafólks og atvinnurekenda á Íslandi miklu betur um besta vinnulagið til árangurs í þessum efnum en hliðstæð norræn samtök. Við erum alltaf bestir í öllu eins og ónefndur maður, segir svo oft við aðrar þjóðir. Eða hvað?
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Þorvaldur S skrifar:
19/05/2015 at 21:12 (UTC 0)
Mér finnst alltaf svo falleg óskin sem Árni Bergmann sendir vinum sínum sem fara yfir móðuna miklu: Megi moldin verða henni létt sem fiður.
Þorvaldur S skrifar:
10/05/2015 at 10:36 (UTC 0)
Það er mörg ambagan. Í Grettissögu segir: Þeir spurðu hvort Grettir hefði ollað þessu óhappi og sögðu þetta hið mesta illvirki.
En höfundur Grettissögu var náttúrlega hinn mesti ambögusmiður.