«

»

Molar um málfar og miðla 1755

STAÐSETNINGARÁRÁTTAN

Margir fréttaskrifarar hafa ofurást á orðinu staðsettur. Af mbl.is á laugardag (18.07.2015): ,,Ann­ar kran­inn verður staðsett­ur í Mjó­eyr­ar­höfn en hinn á Grund­ar­tanga og mun sá síðar­nefndi meðal ann­ars verða nýtt­ur til að þjón­usta ál­ver Norðuráls.” Kraninn verður við eða í Mjóeyrarhöfn. Hinn kraninn verður meðal annars notaður í þágu Norðuráls. Orðinu staðsettur er næstum alltaf ofaukið. Því má sleppa. Ekki hefði sakað geta þess, að geta þess að ,,Mjóeyrarhöfn er við norðanverðan Reyðarfjörð, miðja vegur á milli þéttbýlisins í Reyðarfirði og Eskifirði og heyrir dagleg umsjón hafnarinnar undir Reyðarfjarðarhöfn. Mjóeyrarhöfn er með stærri vöruflutningahöfnum landsins. Hún er staðsett skammt frá álveri Alcoa Fjarðaáls og þjónar fyrirtækinu varðandi aðdrætti og útflutning á álafurðum.” – Af heimasíðu Fjarðabyggðar. Höfnin er sem sé staðsett!

Sjá: http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2015/07/18/staerstu_hafnarkranar_landsins_komnir/http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2015/07/18/staerstu_hafnarkranar_landsins_komnir/

 

VETTVANGURINN

Úr frétt á mbl.is (18.07.2015): ,,Slökkvistarf tók um einn og hálf­an tíma að sögn Gunn­ars, en lög­regla tók svo við vett­vangi og er að rann­saka hann”. Það var og. Lögregla tók við vettvangi! Þarna hefði til dæmis mátt segja: Lögreglan rannsakar málið. Viðvaningur á vakt og enginn til lesa yfir eða leiðbeina. Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/07/18/sprengingin_ut_fra_eldunartaekjum/

 

KOSNING – ATKVÆÐASGREIÐSLA

Í tíufréttum Ríkisútvarps á laugardagskvöld (18.07.2015) var talað um ( Grikkland) að kjósa gegna skilyrðum. Betra hefði verið að segja að greiða atkvæði gegn…

Í að minnsta kosti fjórum, ef ekki fimm, fréttatímum síðdegis þennan dag var fyrsta frétt löng og ítarleg frásögn um hækkun á mjólk og mjólkurafurðum. Vissulega talsverð frétt, en dálítið undarlegt verklag, samt. Að hafa þetta á oddinum allan daginn. – Hversvegna eru nýliðar, sumarfólk, svona oft látið eitt um fréttirnar um helgar? Slæleg verkstjórn.

 

PERLA

Þátturinn Söngvar af sviði, sem var á dagskrá Rásar eitt á laugardagsmorgni (18.07.2015) var sannkölluð Útvarpsperla.

Sögumaður og umsjónarmaður var Viðar Eggertsson, en þátturinn var um söngleik þeirra bræðra Jónasar og Jóns Múla Árnasona, – Deleríum Búbónis. Tónlistin stórkostlega , enda löngu orðin sígild. Takk. Oft virðist skrifara sem besta efnið á Rás eitt , – sé endurtekið efni úr fjársjóðakistu Ríkisútvarpsins. Kannski eru það ellimörk!

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>