«

»

Molar um málfar og miðla 311

Gleðilega hátíð !

Talsverðar líkur eru á að Landsmót hestamanna verði frestað, sagði þulur í tíufréttum Ríkissjónvarps (20.05.2010). Þarna átti  orðið   landsmót að vera í þágufalli. Einhverju er frestað. Eitthvað er ekki frestað. Í sömu frétt var sagt: Allar keppnir hafa verið slegnar af !  Í þessum fréttatíma var einnig sagt: … síðan í gærnótt. Slíkt  orðalag kannast Molaskrifari alls ekki við og finnur  ekki  í fljótu bragði  í orðabók.  Hann verður sömuleiðis að játa, að hann veit ekki hvort átt er  við í nótt sem leið, síðastliðna  nótt, eða í  fyrrinótt.

 Íslendingur,sem lengi hefur búið erlendis, og lætur sér  annt um móðurmálið, sendi Molum eftirfarandi:

 „Ég rakst  á skemmtilega fyrirsögn áðan. Fyrirsögnin, sem er á síðu Ríkisútvarpsins, er svona:
„Síbrotamaður dæmdur af Hæstarétti“ 

Ekki er alveg ljóst af fyrirsögninni, hver dæmdi síbrotamanninn af Hæstarétti, eða hvort hann var einn af dómurunum, alla vega virðist Hæstiréttur hafa þurft að sætta sig við að missa þennan ágæta síbrotamann.
Það er auðvitað ekki rangt að nota þolmyndina – bara klaufalegt, – og getur á stundum valdið misskilningi.“
 
 
 Molaskrifari nefnir hér til sögunnar annað  dæmi um klaufalega þolmyndarnotkun. Fréttamaður   Ríkissjónvarps segir í athugasemd við Mola um málfar og miðla 309:  Japanska sjónvarpsstöðin fékk efni til birtingar sem tekið var af okkur í Bagdad en í staðinn fékk RUV viðtalið við Ethan.Það hlýtur að hafa verið  erfitt að láta af hendi efni,sem búið var að taka  af þeim sjónvarpsmönnum í Bagdad !   Þetta segir nú líklega einhver að sé útúrsnúningur.  En þetta er heldur óhönduglega orðað.
Frétt á  visir.is (21.05.2010): Lögreglunni á Selfossi barst í nótt beiðni um aðstoð við stálpaðan ungling,  Hve gamall skyldi stálpaður unglingur  vera ?
Ekki finnst Molaskrifara það fyrirmyndar, þegar ráðherra (Stöð 2, 21.05.2010)) talar um að vinna  tjón til baka, í merkingunni að  bæta tjón. Í fréttum Stöðvar tvö sagði fréttamaður  þetta sama kvöld: Alla daga sem  flugsamgöngur eru niðri. Þetta er ambaga. Hann hefði átt að segja: Alla daga, sem flugsamgöngur liggja niðri eða falla niður.

Svo er hér rúsína í pylsuendann úr mbl.is (22.05.2010) : Þeir sem lifa hjartaáfall af eru mjög líklegir til þess að forðast kynlíf eins og heitan eldinn þar sem þeir telja að ástundun kynlífs geti riðið þeim að fullu. 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>