Ekki heyrði Molaskrifari betur en í veðurfregnum að morgni dags (22.05.2010) væri talað um norðnorðaustan logn í Reykjavík! Það er mikil blíða. En kannski var Molaskrifari bara milli svefns og vöku og heyrði eitthvað,sem aðrir ekki heyrðu! Molaskrifara misheyrðist ekki. Sama orðalag var notað, tvívegis, í veðurfréttum að morgni Hvítasunnudags (23.05.2010). Þá var talað um norðnorðvestan logn og suðsuðaustan logn. Þetta er Molaskrifara alveg nýtt.
Óvenjulega gott málfar var í átta fréttum RÚV að morgni Hvítasunnudags. Hrós fyrir það.
Glæsileg fyrirsögn á pressan.is (22.05.2010): Nettur 90’s fílingur í Prep for Colour línunni frá MAC !
Íþróttafréttamönnum Ríkissjónvarpsins er ekki sérstaklega annt um að vanda mál sitt. Eftirfarandi dæmi eru úr sama íþróttafréttatíma Ríkissjónvarpsins (22.05.2010):
… fékk rautt spjald fyrir kjaftbrúk, leikmaðurinn fékk rautt spjald fyrir ljótan munnsöfnuð. Hefur ekki riðið feitum hesti að undanförnu… Þetta er bara bull. Orðtakið er að ríða ekki feitum hesti frá einhverju, – að komast ekki vel frá einhverju. … liðið væri komið með níu fingur á Þýskalandsmeistaratitilinn, — ekki er þetta íslenskulegt, þótt skiljist við hvað er átt. Og í lokin dæmi um vonda notkun þolmyndar: Vel var mætt af áhorfendum. Íþróttafréttamaðurinn átti við að áhorfendur hefðu verið margir.
Nú er hægt að veðja á hinar ýmsu útkomur sveitarstjórnarkosninganna , sagði fréttamaður Ríkissjónvarpsins í kvöldfréttum (22.05.2010). Þetta finnst Molaskrifara ekki vel að orði komist.
Sjónvarpsuglýsing Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þar sem Hanna Birna borgarstjóri er í aðalhlutverki er afspyrnu vond. Borgarstjórinn horfir hálf hjárænulega á ská út í bláinn. Það er eins og hún þori ekki að horfast í augu við kjósendur, sem auglýsingunni er beint að. Lýsandi dæmi um slæma ráðgjöf á sviði almannatengsla.
Skildu eftir svar