Kvölddagskrá Ríkissjónvarpsins (25.05.2010) var svo sannarlega sniðin að þörfum þeirra sem mest af öllu þrá Evróvisjón og fótbolta.
Klukkan 19:00 Evróvisjón
Klukkan 21:10 Evróvisjón
22:00 Tíufréttir og veður
22:15 Breskur myndaflokkur
23:05 Fótboklti
23:50 Fótbolti
00:20 Evróvisjón, endursýning frá því fyrr um kvöldið.
Það vantar ekki menningarlegan metnað í Efstaleitið. Öðru nær!
Sjónvarpsmenn eiga einkar erfitt með að bera fram heiti norska sveitarfélagsins Bærum í Akershusfylki, þar sem Evróvisjón keppnin fer fram. Fyrrum starfsfélagi þeirra Þóra Tómasdóttir,sem nú starfar í Noregi gæti leitt þá í allan sannleika um hvernig bera á fram Bærum.
Í fréttum Ríkissjónvarps (23.05.2010) sagði frambjóðandi um kröfur landeiganda á hendur Kópavogi, að þær væru út úr öllu korti. Þetta er hálfgerð merkingarleysa. Algengt er að sagt sé, að eitthvað sé út úr kortinu, að eitthvað sé fráleitt, komi alls ekki greina. Líkingin er úr sjómannamáli þar sem talað er um að sigla út úr kortinu, sigla um hafsvæði , sem stjórnandi skips hefur ekki sjókort yfir.
Úr visir.is (24.05.2010): …..sagði að sundið hefði að öllum líkindum gengið að venjulegum sundkappa dauðum. Orðtakið er að ganga af einhverjum dauðum, ekki að. Drepa einhvern. Þú getur gengið að því vísu, að árásarmaðurinn gekk af honum dauðum.
Svo virðist sem enginn þingmaður eigi jafngreiðan aðgang að fréttastofu ríkisins, sem Ögmundur Jónasson fyrrverandi fréttamaður.
Skildu eftir svar