Það er ennþá 2007 hjá Orkuveitu Reykjavíkur, þegar þetta fyrirtæki í almannaeigu kaupir átta milljón króna Benz handa fjármálastjórann, að sögn DV (09.06.2010). Þeir voru kannski aðeins of fljótir á sér. Í dag (09.06.2010) auglýsir Bílabúð Benna 14 milljón króna Porsche jeppa. Sá bíll hefði örugglega farið þessum embættismanni vel. Maður verður að komast fljótt og greiðlega í vinnuna til að hækka heita vatnið um 37% og rafmagnið um 27% til viðskiptavina fyrirtækisins. Skilið þið bílnum og kaupið Skóda, ef þessi embættismaður þarf svo nauðsynlega á bifreiða að halda.
Í DV (08.06.2010) segir frá flugi Iceland Express til Bandaríkjanna. Þar segir að flogið verði til og frá Newark flugvelli, sem sé nýlegur flugvöllur. Þetta er eins og hver annar þvættingur. Newark flugvöllur (Newark Liberty International Airport) var tekinn í notkun 1. október 1928, en hefur auðvitað verið margstækkaðir og mikið byggt þar síðan. Kennedy flugvöllur,sem Icelandair notar, hét áður Idlewild. Byrjað var á gerð hans 1943. Þriðji flugvöllurinn á þessu svæði er La Guardia. Hann var tekinn í notkun 1939.
Mögnuð var dagskrá Ríkissjónvarpsins að kveldi þriðjudagsins 8. júní. Að loknum fréttum og Kastljósi, Landsleikur í handknattleik, HM 2010, Leiðin á HM , endursýning, sextándi þáttur af sextán svo tíu fréttir og veður. Íþróttaunnendur hafa algjöran forgang hjá Sjónvarpi ríkisins. Þar ræður íþróttadeildin kvölddagskránni. Og svo seinkaði íþróttadekrið tíu fréttum um tíu mínútur, en það þykir hreint ekki tiltökumál í Efstaleiti.
Í Ríkisútvarpinu var í morgun (09.06.2010) sagt að uppboð hefði verið frestaðí stað þess að segja, að uppboði hefði verið frestað. Æ algengara er að heyra þessa málvillu , nú þegar oft er fjallað um nauðungaruppboð í fréttum.
Forseti Eistlands kemur í heimsókn til Íslands, segir DV (09.06.2010) og birtir mynd af Ólafi Ragnari Grímssyni !
Skildu eftir svar