Fréttir í Útvarpi Sögu fóru hnökralaust af stað (01.07.2010), en þar er reyndur fréttamaður Haukur Hólm við stjórnvölinn. Einhverjum kann ef til vill að finnast sú orðanotkun orka tvímælis að kalla fólk á þrítugsaldri ungmenni eins og gert var í fyrsta fréttatímanum. Það orð finnst Molaskrifara betur eiga við um fólk undir tvítugsaldri. Verið var að segja frá ungum Íslendingum sem í fylleríi ollu skemmdum á bílum og bifhjólum á Ítalíu. Útvarpsstjóri Útvarps Sögu hélt upp á þennan áfanga í morgunþætti sinum.
Fjöldi listamanna koma fram,sagði þrælvanur fréttamaður og þulur í kvöldfréttum RÚv (30.06.2010). Þetta átti að sjálfsögðu að vera: Fjöldi listamanna kemur fram. Fjöldi er nefnilega eintöluorð.
Æ algengara er að sjá og heyra forsetningunum að og af ruglað saman. Dæmi um þetta mátti sjá á visir.is (30.06.2010), en þar sagði: Lögreglan óskaði svo eftir vitnum af atburðinum í gær. Lögreglan óskaði sem sé eftir að hafa tal af vitnum að atburðinum, ekki af atburðinum. Maður verður vitni að einhverju. Sér eitthvað gerast eða fylgist með einhverju gerast.
Stundum á Molaskrifari erfitt með að átta sig á rökrænu samhengi hlutanna. Í Garðabæ er Fréttablaðið borið heim til hans á hverjum morgni. Ókeypis. En ef hann ætlar að sækja Fréttablaðið í verslun á Selfossi verður hann að borga fyrir það !
Svo er hér að lokum örlítil leiðrétting á umfjöllun DV um garðsláttuvélar (30.06.2010). Þar segir Jóhann mælir með því, að fólk kaupi sláttuvélar með mótorum annað hvort frá Briggs eða Stratton…. Briggs & Stratton er eitt og sama fyrirtækið. Það framleiðir litla bensínmótora, sem eru nánast ódrepandi.
Skildu eftir svar