Úr mbl.is (01.07.2010): Líkt og fram hefur komið er hvöss lægð yfir landinu nú og má búast við hvössum vindi víða á landinu í dag. Molaskrifaði minnist þess ekki að hafa áður heyrt talað um hvassar lægðir. Málvenja er að tala um djúpar lægðir, eða krappar lægðir í fréttum af veðri og vindum.
Úr Fréttablaðinu (01.07.2010) þar sem sagt var frá vélarbilun í Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi: Báturinn var fullhlaðinn fólki og bifreiðum og ýttu tveir bátar skipinu upp að höfninni til að láta kafara kanna hugsanlegar skemmdir. Hér er Herjólfur bæði kallaður bátur og skip. Herjólfur er skip eða ferja. Kannski óljóst hvar mörkin milli báts og skips liggja , en engin vegur er að kalla Herjólf bát. Svo voru tveir bátar fengnir til að ýta skipinu að bryggju. Skipinu var ekki ýtt upp að höfninni ! Þeim sem þetta skrifaði er ekki ljós munurinn á höfn og bryggju.
Skrifað er á dv.is (01.07.2010): Þýski auðkýfingurinn Otto Happel er staddur hér á landi þessa dagana og ætlar að renna fyrir laxi í Blöndu. Menn renna ekki fyrir laxi. Menn renna fyrir lax, þegar menn reyna að fanga þennan, að sögn, göfuga fisk. Sama villa er í fyrirsögn og fréttinni sjálfri. Þeir á dv.is eru því samkvæmir sjálfum sér í vitleysunni. Menn renna fyrir fisk, ekki fyrir fiski,segir í Íslenskri orðabók.
Sjónvarp íslenska ríkisins sýnir viðskiptavinum sínum meiri fyrirlitningu en nokkur önnur sjónvarpsstöð. Í gærkveldi (02,07.2010) var klukkutíma seinkun á auglýstri dagskrá og enginn sagði svo mikið sem : Afsakið , að dagskrá skuli hafa seinkað ! Þetta er rakinn dónaskapur. Ekkert var við því að gera að leikur var framlengdur, en fimbulfambi sjálfumglaðra ,,sérfræðinga“ hefði svo sannarlega mátt sleppa. Líklega fá þeir vel borgað fyrir bullið. En það kostar hinsvegar ekki neitt að biðja hlustendur afsökunar. Það hefðu verið mannasiðir.
Vefmiðilinn visir.is gerði Molaskrifara þann heiður að birta ofangreind ummæli um Ríkisútvarpið (03.07.2010) ásamt mynd. Myndatextinn var svona:Eiður átti sæti á Alþingi á árunum 1978-1983 og aftur 1987-1993. Síðustu þrjú árin gegndi hann embætti umhverfisráðherra. Eiður var sendiherra á árunum 1993-1999. Mynd/GVA
Í þessum stutta texta er rangt með farið í hverri einustu setningu !1. Átti sæti á Alþingi samfellt frá 1978 til 1993. Var umhverfisráðherra í rúmlega tvö ár. Var sendiherra frá 1993 til 15. febrúar 2009. þetta er eiginlega mjög vel af sér vikið hjá þeim sem skrifaði þennan stutta texta.
Skildu eftir svar