«

»

Faðir, um föður…..

 Það verður nú  eiginlega að gera þá  kröfu  til þeirra sem skrifa fréttir á mbl.is að þeir kunni að beygja  algeng orð  eins og  faðir. 

„Faðir þess síðarnefnda bar fljótt að og var honum gerð grein fyrir málinu… “  

Engin  máltilfinning. Engin íslensku kunnátta.  Ekki boðlegt í alvörufjölmiðli.

mbl.is Ungir veggjakrotarar handsamaðir

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Karl skrifar:

    Þessu er ég sammála. Ég greini hrikalega afturför á sviði íslenskrar fjölmiðlunar. Það á ekki einungis við um tunguna þótt hörmungarástandið blasi einna helst við þar. Á dögunum var birt í Fréttablaðinu forustugrein sem fjallaði um stöðu íslensku krónunnar. Fyrirsögnin var svohljóðandi: „Undir árás“ („under attack“). „Undir árás“!!!! Þetta var forustugrein blaðsins!!  Og ekki er hún skárri í dag. Vísað er til „alarmisma“ í fyrirsögninni sem ég hefði haldið að nefndist „hræðsluáróður“ á íslensku.  Fjölmiðlar hér á landi, einkum dagblöðin, nálgast nú hratt það stig að geta talist með öllu óboðlegir hugsandi fólki. Ég skil sannast sagna ekki að fleiri skuli ekki benda á þessa hörmulegu þróun og andmæla metnaðarleysinu. Kveðja, Karl

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>