Markið hefði ekki að telja vegna rangstöðu,var sagt í íþróttafréttum Stöðvar tvö (17.10.2010). Betra hefði verið: Markið var ógilt vegna rangstöðu. Í sama fréttatíma var sagt um tiltekinn leikmann: …. lék á öll hljóðfærin og skoraði tvö mörk. Hverskonar rugl er þetta eiginlega? Lék á öll hljóðfærin ???
Í fréttatíma Stöðvar tvö (17.10.2010) var sagt að tíðni krabbameins væri algengara…Molaskrifari hefði talið eðlilegra að segja að tíðnin væri hærri (sbr. hátíðni) eða meiri.
Nokkur gömul og gild orð hafa öðlast alveg nýja merkingu í munni ungmenna. Ógeðslega skemmtilegt merkir mjög skemmtilegt og sjúklega gott merkir afar gott. Eins er talað um eitthvað sé fáránlega skemmtilegt, mjög skemmtilegt. Dæmi um þetta heyrðust reyndar í sömu setningunni hjá viðmælanda fréttamanns í fréttatíma Ríkissjónvarps (17.10.2010) Við þessu er ósköp lítið að segja. Þessi þróun er orðin staðreynd fyrir löngu.
Útvarpsþáttur þeirra Berglindar Baldursdóttur og Ásgríms Angantýssonar (16.10.2010) þar sem rifjuð var upp umfjöllun í Ríkisútvarpinu um daglegt mál var fróðlegur um margt. Óþarft var þó að gera lítið úr þeim ágæta fræðimanni prófessor Halldóri Halldórssyni. Samúðin með hinni svokölluðu reiðareksstefnu fór ekki dult. Hún virðist nú vera hin opinbera málstefna Ríkisútvarpsins.
Molaskrifari horfði á endursýningu heimildarmyndar Hans Kristjáns Árnasonar um Holger Cahill eða Svein Kristján Bjarnarson, Vestur Íslending,sem átti sér ævintýralegt lífshlaup. Áhugaverð mynd og ágætlega gerð,- samhengi þó svolítið ábótavant á stöku stað. Margt er ósagt, sýnt og skrifað af sögu landa vorra í Vesturheimi.
Rétt er að ljúka þessum Molum með tilvitnun í grein eftir Helga Hálfdanarson úr Morgunblaðinu 23. febrúar 1977. Helgi segir þar: „Það varðar að sjálfsögðu við lög að vinna spjöll á landi voru, hvort heldur spillt er nytjagæðum þess eða náttúrufegurð. Hinsvegar getur víst hver sem er unnið hvaða skemmdarverk sem vera skal á móðurmálinu óátalið, enda þótt þar sé í húfi vor dýrmætasta eign.“
Es: Svo er hún alveg ægileg þessi Ægisíða! Skilti við gangstíg í Reykjavík. Molaskrifara finnst að gatan ætti að heita Ægissíða.
Skildu eftir svar