«

»

Molar um málfar og miðla 435

Hvenær ætla  fjölmiðlamenn að spyrja  hina sjálfskipuðu talsmenn svokallaðra Hagsmunasamtaka heimilanna beittra og  meitlaðra spurninga um samtökin  og starfsemi þeirra ? Við eigum að fá að vita  fulltrúar hverra þeir  eru og fróðlegt væru að þeir gerðu almenningi grein fyrri eigin skuldastöðu. Eins og  er gleypa fjölmiðlar allt hrátt,sem frá þessu fólki kemur og marklaus gífuryrðin falla dauð.

  Í morgunfréttum Ríkisútvarps (18.10.2010) var sagt:  Bílaeigendur hamstra nú  eldsneyti sem best þeir geta.  Eðlilegra hefði verið að segja: … hamstra nú eldsneyti,sem mest þeir mega.

  Umsjónarmaður  Rásar tvö í Efstaleitinu (20.10.2010) sagði okkur,  að í  DV  væri viðtal við þriggja barna faðir ! Hvernig  væri að  málfarsráðunautur kenndi þessu fólki  hvernig orð  eins og  faðir, móðir, systir,og bróðir beygjast ? Kannski leyfir hið alkunna  umburðarlyndi  í Efstaleiti svona  villur.

 Í spjalli við Kristján Þór Júlíusson (20.10.2010) meðal annars um utanríkisþjónustuna opinberuðu umsjónarmenn Rásar tvö fáfræði sína með eftirminnilegum hætti. Þeir höfðu ekkert kynnt sér  málið.  Einkaskoðanir  umsjónarmanna koma okkur hlustendum ekki við.   

  Vinsamleg ábending til fréttastofu Ríkisútvarps: Höfnin á  suðurströndinni  heitir  ekki Landeyjarhöfn, eins og  ritað  er á  fréttavef  Ríkisútvarpsins  og  sagt var (heyrði ekki betur) í sjónvarpsfréttum (18.10.2010). Höfnin heitir Landeyjahöfn. Þetta er ekki mjög flókið.

   Fróðlegt var að heyra Gunnar Kvaran fréttamann spyrja  viðmælanda sinn  í umfjöllun um Sigtúnshópinn svonefnda  1983:  Ertu með  stóra íbúð?  Já,  ég er með 110 fermetra  íbúð var svarið. Þetta var rifjað upp í  Vítt og breitt, morgunþætti Rásar eitt (18.10.2010) . 110  fermetra íbúð þykir frekar lítil íbúð  á Íslandi árið 2010!

 Molaskrifari hefur lítið hlustað á Útvarp  Sögu að undanförnu. Heyrði endurtekið viðtal við umboðsmann skuldara (18.10.2010). Það sem Molaskrifari heyrði  nægði til að sannfæra hann  um að umboðsmaður skuldara er ekki líklegur  til stórafreka og   þetta sýnist   ekki öflugt  embætti  eftir málflutningi  umboðsmannsins að dæma. Malflutningurinn var  ósannfærandi,- ekki skal minnst á málfarið. Það er skaði. Þarna virðist ekki vel hafa tekist til.  Útvarp Saga heldur annars  áfram bulli sínu um neyðarstjórn og utanþingsstjórn. Þar breytist ekkert.  

 Fínir þættir Árna Blandon á rás eitt á  sunnudagskvöldum um Niflungahringinn.  Hversvegna  getur   Ríkissjónvarpið  ekki sýnt okkur   sígild verk, óperur eða tónleika einu sinnin eða  tvisvar í mánuði? Norrænu ríkisstöðvarnar NRK2 og SV2 bjóða  skyldugreiðendum  sínum slíkt efni að minnsta kosti vikulega.  Líkleg skýring er að dagskrárstjórar  Ríkisútvarpsins þori ekki að  bjóða okkur slíkt efni vegna gagnrýni frá  hinu háværa fótboltaliði,sem  fær allar sínar óskir uppfylltar í Efstaleitinu.  Nú skal enn aukið vægi íþrótta í dagskránni með sérstökum vikulegum handboltaþætti  með  sérstökum umsjónarmanni og  sérstökum álitsgjafa. Handbolti er ágætur, en íþróttir eiga ekki að hafa algjöran forgang í dagskránni eins og nú er.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>