«

»

Málfar í vikulokin

Einu sinni þótti fínt að sletta  dönsku. Nú þykir það hálfhalllærislegt. Nú þykir hinsvegar  sumum fínt að sletta ensku.  Við  þurfum að gera það hallærislegt sem það er. Oft sletta þeir mestri  ensku sem  minnst kunna fyrir sér í því annars ágæta máli.

Var að enda við að  hlusta á þáttinn  Í  vikulokin á  RÚV. Heyrði reyndar bara  síðustu  15 mínúturnar eða  svo.  Þar  var talað um  „óþarfa  risk“, Björn  Bjarnason   væri mest „efficient  “ allra   ráðherra undanfarin   20 ár, sem ég dreg  hreint  ekki í  efa.  Svo var  talað um „neighbourhood watch“.   Er  fólk að  missa   tökin á móðurmálinu?  Af hverju var  ekki  sagt „óþörf áhætta“, „dugmestur“,“duglegastsur“  eða „afkastamestur“ og  „grannagæsla“,  eða „grannagát“sem  er  prýðilegt orð  yfir það sem á ensku   er kallað „neighbourhood  watch“.

Ambagan  að  ganga „milli  Pontíusar og  Pílatusar“ heyrðist líka í þessum hætti. Maður  hét  Pontíus Pílatus, en   að fara erindisleysu  frá  einum embættismanni  til annars er að fara frá Heródesi Pílatusar, ekki satt?

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Þakka þér fyrir Ágúst. Átta mig samt ekki alveg því hvað þú ert að fara, en rétt er að viðtengingarháttur er á undanhaldi.

  2. Ágúst skrifar:

    Sæll Eiður.
    Hann kann að vera orðinn býsna gamall pistillinn þinn sem mig langar að gera athugasemd við. Ég sé ekki hvenær hann var birtur, en unglegur ertu á myndinni sem honum fylgir (og ert það sennilega enn).
    Í fyrstu tvær setningarnar í annarri málsgrein vantar frumlag. Hver var að hlusta á þáttinn Í vikulokin. Var það Björn Bjarnason, Pontíus pílatus, eða kannski þú sjálfur?
    Ég þakka þér fyrir góða og vonandi gagnlega pistla um málfar. Ég hef ekki séð hjá þér umfjöllun um skort á notkun viðtengingarháttar hjá blaðamönnum (og fleirum). Þeir ættu til að segja: „Ég held að viðtengingarháttur er að hverfa úr íslensku máli“.
    Með kveðju,
    Ágúst.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>