Á þessum stað var fyrir nokkru vikið að hinni nýju nafnháttarsýki,sem nú verður æ algengari og breiðist raunar út eins og eldur í sinu.
Í hádegisfréttum RÚV var í dag rætt við hagfræðing hjá Glitni. Í örstuttu viðtali sagði hagfræðingurinn tvisvar sinnum „er að valda“ og tvisvar sinnum „höfum verið að sjá“. Hversvegna ekki „veldur“ og „höfum séð“. Einfaldara, réttara og fallegra.
Það væri góð fjárfesting fyrir stórfyrirtæki eins og bankana að kenna starfsfóilki sínu að tjá sig skammlaust á íslensku. Það væri líka traustvekjandi.
Það var svo ekki upplífgandi í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins að heyra framhaldsskólakennara tala um „þrjú kennaralaun“.
Skildu eftir svar