«

»

Molar um málfar og miðla 520

Það er alvarlegt áfall fyrir  trúverðugleika Morgunblaðsins,sem fréttamiðils, að uppsláttur blaðsins (31.01.2011) um að blaðamaður DV   hafi  stöðu grunaðs manns í tilteknu málu  skuli hafa verið uppspuni. Það tekur langan tíma fyrir  fjölmiðla  að endurvinna traust,  þegar þeir  bregðast  trausti lesenda sinna.

Merkilegt fréttamat hjá Fréttastofu Ríkisútvarpsins, að  það skuli vera fréttaefni, að tiltekinn blaðamaður segi sig úr Sjálfstæðisflokknum (02.02.2011). Hvað ef verkamaður hefði sagt sig úr flokknum? Hefði útvarpi allra landsmanna þótt það fréttnæmt?

 Mjög var það ofmælt hjá  Fréttastofu Stöðvar tvö (02.02.2011) að kalla leirinn ,sem Árni Johnsen fór með  á  Alþingi, kvæði.

Í  sexfréttum Ríkisútvarps (02.02.2011) var svo tekið til orða að hækkun hefði þurft að vera hærri. Eðlilegra hefði verið að segja, að hækkun hefði þurft að vera meiri.  Í sama fréttatíma var  rætt um raunvexti og sagt:  Þar sem vextir á innlánsreikningum geta borið neikvæða  raunvexti.  Betra  hefði verið  að segja: Þar sem raunvextir á innlánsreikningum geta verið  neikvæðir.

Undarlegur er myndatexti  á baksíðu Morgunblaðsins (02.02.2011). Þar segir  Gamla mjólkurbúið sem stendur  fyrir aftan Jóhann á myndinni hér að ofan, var reist af Thor Jensen, þegar hann átti Korpúlfsstaði. Jóhann var fjögurra ára gamall þegar hafið var að byggja  húsið.  Við þennan  texta er  eftirfarandi að  athuga frá  sjónarhóli Molaskrifara.  Korpúlfsstaðir  voru ekki  mjólkurbú  heldur kúabú,  eitt það fullkomnasta í Norðurálfu  þar sem að  vísu var  mjólkurvinnsla (sem Framsóknarmönnum tókst að drepa á sínum tíma) Kjánalegt er að segja að  húsið   standi fyrir aftan Jóhann.  Húsið er í baksýn,  Jóhann stendur    fyrir framan húsið. Húsið var reist af Thor  Jensen. Óþörf þolmynd. Thor Jensen  reisti  húsið. Thor  Jensen  keypti  kotið Korpúlfsstaði. Tugir vinnufólks og  vélar  breyttu  melum í iðgræn tún . Thor Jensen  reisti þar   stærsta bú landsins og   jafnvel þótt víðar væri leitað.  Í  síðustu setningunni segir : … þegar hafið var að byggja húsið. Betra:  … þegar bygging hússins hófst. Ekki mjög gott.

Það var góð tilbreyting hjá Ríkissjónvarpinu að tilkynna  fyrirfram  við hvern  yrði  rætt í Þætti Þórhalls Gunnarssonar  Í návígi (01.02.2011). Þetta hefur oft verið nefnt í Molum. Það er engin ástæða  til að halda  því leyndu  fyrir áhorfendum við hvern á  að ræða og greina  ekki frá því fyrr en þátturinn  hefst. Vonandi verður framhald á.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>