«

»

Molar um málfar IV

Í  þessum molum hefur  verið meira um last en lof.  Ástæða er til     hrósa þeim, sem skrifa og  lesa fréttir RÚV á nóttunni,  en þar eru lang oftast  að verki þeir  Jón Thordarson og Kristófer  Svavarsson. Fréttir þeirra  eru   á  vönduðu máli og  vel fluttar.

 

Stundum  finnst mér að  visir.is  hljóti að vera  verst  skrifaði netmiðillinn:

 

Dæmi:

Ástralski rithöfundurinn Harry Nicolaides var sleppt  lausum úr  Taílensku fangelsi   21.02.

  

Íslenskum hjónum, með fjögur ung börn, og feðgum var flogið heim frá Danmörku í gær á kostnað….        og

Með von um betri framtíð í Danmörku flugu þau út ásamt bróður konunnar og sonar hans  22.02.

Um fangelsismál:

Yfirvöld hafa neyðst til að  tvímenna í  suma  klefa… (Það  væri  ekki ónýtt að  sjá yfirvöld  tvímenna !)

Erlendum föngum  fjölgar statt og  stöðugt  

Haft eftir  talsmanni  skattgreiðenda um   greiðslur til þingmanna á  Evrópuþinginu: “Hann sjái ekkert annað en  rán um hábjartan dag”. Fréttaskrifari    talar  reyndar um  Evrópuráðsþingið .Það   er  rugl.  Fréttin er um þingmenn á  Evrópuþinginu.

Þetta eru undirmálsskrif.

4 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Hrönn Sigurðardóttir skrifar:

    hehe góður pistill 😉

  2. Sverrir Einarsson skrifar:

    Klukkan er tvö frrrrétttassstofa rrrríkisssúúútvarrrrpssssinnnssss Krrrrisssstóferrrr Svavvvarrrrssssson!!!!!!!

    Klukkan er tvö fréttir Jón Tórdarson!!!!!!!!!

    Hvort er nú áheyrilegra……ég nefnilega hlusta á þessar fréttir 1, 2, 5 og 6 fréttir á hverri nóttu og er þeirri nótt fegnastur þegar Krrrrrissssstófferrrr SSSSSvavarrrrssssssson les EKKI, sjaldan hefur sá maður prófarkarlesið fréttirnar, þær virðast standa í honum, jafnvel þó hann sé að lesa sömu fréttirnar í öllum fréttatímum (oftast nóg að ná 1 fréttunum) þá veit maður hvað er í þeim sem seinna koma Jón er þó skömminni skárri með að finna nýjar fréttir.

    Sl. nótt þegar búið var að ákveða kaup Þórsmerkur á Mbl.is var ekki orð um það í neinum fréttatíma og ég tók eftir því að allar fréttir þá nótt voru erlendar…..meira segja fréttir af gengi 18 ára norsks stráks í skák þóttu honum merkilegri en salan á Morgunblaðinu.

    Báðir mættu að ósekju lesa yfir þær fréttir sem þeir eru að fara að lesa upp áður en þeir lesa þær í útvarpið, þá yrði minna um tafs og hik.

    Góðar stundir

  3. Lady Elín skrifar:

    Ég vil þakka þér fyrir þessa pistla þína um málfar.  Ég virkilega nýt þess að lesa þá þegar þeir birtast hérna.  Ég er nemandi við Háskólann í Glasgow (hef verið það síðustu 6 ár) þar sem flest dagleg samskipti mín eru á ensku og það veitir ekki af að ég reyni að halda íslenskunni minni við.  Ég reyni í þaula að vera eins vel máli farin á íslensku og mér er unnt, en það er stundum erfitt.  Sérstaklega þegar ég er nýkomin heim á klakann.  Sá brandari gengur milli vina minna að þegar ég loksins lýk námi að þá þurfi ég að mæta á námskeið hjá Mími, ,Íslenska fyrir útlendinga'.  Með þessari kveðju vildi ég einungis sýna fram á að ég met þessi skrif þín hér mikils og þau eru mikil hjálp og ekki síst gott aðhald fyrir mig. 

    Elín

  4. Helgi Már Arthursson skrifar:

    Gæti ekki verið meira sammála því sem þú segir um um þá Kristófer og Jón. Það er ekki bara vandað málfarið því oftar en ekki eru þeir félagar með áhugaverðar fréttir sem eru kærkomin viðbót við síbylju stuttfrétta dagsins. Vel þess virði að taka tólf og eitt fréttirnar að nóttu til.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>