«

»

Molar um málfar XCIV

 Er Icesave sáttmálinn hænufet frá landráði ?  Svona auglýsir ÍNN  sjónvarpsstöðin (23.06.09.)  í  Ríkisútvarpinu.  Þegar sífellt er  verið að brigsla   ráðamönnum um  föðurlandssvik og  landráð  minnir það á  málflutning íslenskra  kommúnista  og Þjóðviljans á  árunum  um og upp úr  1950, þegar  forystumenn   lýðræðisflokkanna  voru  kallaðir landráðamenn og landssölumenn. Svo  er  sá  sem auglýsinguna  samdi ekki vel að sér  um íslenskt  mál,  því  orðið  landráð  er fleirtöluorð og  að ég best   veit ekki til í  eintölu.

Af  Vefvísi (23.06.09.)..sem farið hefur meðal annars með hlutverk alríkismannsins Fox Mulder .. Alríkismaður ? Hér  hefur  skrifari   að líkindum verið að þýða úr ensku  þar sem  talað hefur verið  FBI mann,  en nákvæmlega  þýtt er það  alríkislögreglumaður,sem  er  nú heldur  klúðurslegt orð. En  alríkismaður  er  auðvitað merkingarleysa.

Það er  leiður  siður  að nota þolmynd að óþörfu. Germynd er alltaf betri. Af  Vefvísi (24.06.09.): Sextán ára drengur var stöðvaður af lögreglu á Akureyri í nótt…  Betra hefði verið:  Lögreglan á Akureyri  stöðvaði sextán  ára dreng í nótt…

Líklega  kemur að því að maður  hættir að vera hissa þegar umsjónarmenn þátta í sjónvarpi  kunna ekki að beygja  algengustu  orð eins og  dóttir (umsjónarmaður Íslands í dag á  Stöð tvö 23.06.09.)

 Fáein orð um fréttaflutning: Vegir  fréttastofu RÚV eru  oft einkennilegir, að maður ekki segi órannsakanlegir. Á sínum  tíma  tók fréttastofa   sjónvarps  sérstöku ástfóstri  við mál veðurfræðings, sem  taldi sig    verða   fyrir einelti á  vinnustað. Þessi  sami veðurfræðingur  var að nokkru  starfsmaður fréttastofunnar eða  RÚV. Nú er  búið  að  dæma í málinu og frá því  var sagt í  sjónvarpsfréttum 23.06. Veðurfræðingurinn hafði sigur í málinu og fékk bætur vegna  eineltis  en yfirmenn  fengu skömm í hattinn. Gott og  vel. Það var frétt.    En í kvöldfréttum RÚV  sjónvarps   24.06.  var aftur fjallað um þetta  sama  mál  og  engu  bætt  við fréttina  frá  kvöldinu áður. Þetta eru  ekki  eðlileg vinnubrögð. Þetta er ekki   fagleg  fréttamennska. En kannski  höfðu þeir sem  voru á  vakt á miðvikudegi  ekki  horft á  fréttirnar á þriðjudagskvöld, eða er þetta einhverskonar vinavæðing  fréttanna ?

8 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Þ. skrifar:

    Mér finnst að landráð ætti að vera til í eintölu. Gæti þá annað hvort merkt eitthvað svipað og þjóðráð, eða þá verið gagnmerkt ráð, svipað og vísindaráð, og legið undir feldi mestallt árið, en kæmi fram á Þingvöllum árlega og gæfi góð ráð sem landsmenn færu ekki eftir.

    Hvort staðfesting icesave-samnings er nær landráðum eða landráði, er svo annað mál.

  2. Eiður Svanberg Guðnason skrifar:

     Það er nær  ævinlega þannig, Bjarni, að  alþjóðasamningar sem  við undirritum  fela í sér  einhverjar takmarkanir á  rétti okkar, eða réttindum.  Við göngum  að  slíkum samningum vegna þess að  við  metum það svo,að þeir  færi okkur  verðmætari rétt, en þær  takmarkanir ,sem þeir kunna að hafa í för með sér.  Við eigum ekki og megum ekki  einangra okkur frá  samskiptum við aðrar þjóðir. Þá  værum  við að færa þjóðina  áratugi aftur í  tíman og  búa  til  mestu lífskjaraskerðingu sögunnar.

  3. Ómar Bjarki Kristjánsson skrifar:

    Eggert, hver segir að „írar vilji útúr esb ?

    Eb með lisbon treaty, þá var það þannig að and-sinnar saumuðu eina hysteríu þar í landi í fyrra kringum atkvæðagreiðsluna og flest nei atkvæðin voru vegna misskilnings – sem nú hefur verið leiðréttur. 

  4. Haukur Kristinsson skrifar:

    Morgunljóst, borðleggjandi, kristalklárt….leiðinleg lýsingarorð, sem virðast vera í tísku.

  5. Bjarni Kjartansson skrifar:

    Þakka svarið en.

    Tvíhliðasamningur stóð Sviss EKKI til boða fyrir þann tíma, að Svissararnir höfðu séð, hvert svonefnt ,,fjórfrelsi“ færi með rikt þeirra iðnfyrirtækja, ef frjálst yrði flæði fyrirtækja um allar grundir, einnig komu upp element af efa hjá þeim, varðandi frelsi fólksflutninga en það er annað mál og mun flóknara nú umstundir.

    Hitt er, að ég notaði ekki orðið lydduskapur um inngöngu í ESB, heldur átti ég þar við framgang samningamanna okkar og ráðamanna allra í samningum um greiðslur skaðabóta vegna ætlaðs taps af veðmálum erlendra manna um stöðu bréfa og innlána.

    Ég er þess hinsvegar fullviss, að ESB og fyrr EES inngangan var ekkert annað en vél brugguð okkar þjóð og afkomendum hennar.  Það var ógæfa að semja um Viðeyjarstjórnina fyrir okkur íhaldsmenn, of margir ,,gróðapungar“ komust að ráðum og lýðskrumarar náðu of langt.

    Ég er framá með samstarf við þjóðir heims EN geri greinarmun á, hvort afsal réttinda  arfgenginna fylgi undirritun.  Svo var ekki með Nato, né Efta.

    Við erum nú í stöðu sem varð til vegna svonefnds ,,fjórfrelsis“ og sífelldra kærumála víxlara og fyrirtækja þeirra.  Menn heyktust á, að stöðva sumt, sem lá fyrir að væri óvarlegt fyrir þjóð okkar og afkomendur, vegna hræðslu og því sem ég hef sagt vera þrælslundar gagnvart erlendu boðvaldi (ESB regluskipanir um frelsi fjármagns)  svo lá við, að menn misstu Íbúðalánasjóð fyrir borð.

    Þar um stóðum við, nokkrir íhaldskurfar, vörð ásamt og með þjóðhollum mönnum úr öðrum flokkum.

    Við verðum að fara varlega því líkt og sagt er um frjáls dýr merkurinnar, þá er bara eitt skerf frá frumskóginum í fjölleikahúsið.

    Ég á þá ósk heita mjög, að þeir sem unna máli okkar sjái sig um hönd og fari gegn afsali réttinda og framsali þeirra til útlendra manna.

    Miðbæjaríhaldið

    Vill halda í það sem hald er í  en varpa hinu á haug.

  6. Ellert Júlíusson skrifar:

    Það er ástæða fyrir því að Írar vilja út úr ESB. Það er ástæða fyrir því að Írar neita að samþykkja Lissabon sáttmálann.

    Eiður. Það eru ekki landráð að leiða landið að ESB enda yrði það hvort sem er aldrei samþykkt í þjóðaratkvæðakosningu. Það tel ég aftur á móti vera mjög slæmt mál að við séum að gefa eftir grunnréttindi þjóðar í einhliða samning sem skrifaður var af kröfuhafa, af þeirri ástæðu einni (að mönnum sýnist) að sumir af okkar stjórnmálamönnum séu búnir að bíta það í sig að við skulum inn í ESB….með góðu eða illu. Þann gjörning tel ég vera nærri því að vera landráð.

    Góðar stundir.

  7. Eiður Svanberg Guðnason skrifar:

      Sæll Bjarni,

    Tvíhliðasamningur  við ESB stóð okkur  aldrei til boða.   Sjálfstæðisflokkurinn var eini flokkurinn sem  vildi  tvíhliðasamning, en sneri  við  blaðinu  á einni nóttu, eða  svo,  þegar Davíð og  Jón Baldvin mynduðu  Viðeyjarstjórnina.

    Hér  fyrr á árum  vildu   foringjar Sjálfstæðismanna  samstarf við  aðrar þjóðir (Nató, Efta). Nú  er öldin önnur. Ég  er ósammála þér um að aðild  að ESB sé landráð, lydduskapur  eða  falli undir  þau  stóryrði sem þú notar. Ég  tel óhjákvæmilegt að  við  störfum náið  með  Evrópuríkjum. Einangrun hefur  ekki  reynst  okkur vel í ljósi sögunnar.

    Danmörk Svíþjóð og Finnland  eru aðilar að ESB. Það hafa  þá  verið landráðamenn sem leiddu   þau lönd  til aðildar, eða hvað ? Og þau lönd eru ekki lengur  fullvalda  ríki,  eða hvað ?  Það er  hreint ekki hægt að ræða málin á þessum nótum.

  8. Bjarni Kjartansson skrifar:

    Sammála þér um landráðabrigslin. 

    Þau eru ekki svo auðsæ í þessum peningasamningum um Icave bætur.

    Hinsvegar eru þau morgunljós í ESB áráttuhegðan stjórnmálamanna sumra.  Þeim er ekkert heilagt í þeirri viðleitni sinni að koma okkur rakleitt inn í erlent ofurþjóðlegt kerfi, sem hefur okkar hagsmuni að engu, líkt og nú sannast klárlega í ofríki ESB ríkjanna og þvingunaraðgerðum öllum í kringum þá ,,samninga“.

    Það munu kristalklár landráð, að vilja okkur enn bundnari erlendu valdi í lagasetningu og boðvaldi en EES gerði.

    Þar var ég afar mikið á móti undirritun og vildi fá tvíhliða samning við ESB,líkt og Svisslendingar fengu þá þeir sögðu sig frá EES samning sínum.

    Um hið fyrrnefnda, er réttnefni að tala um undirlægjuhátt, lydduskap, aumingjadóm og þýlyndi.

    Með þökk fyrir afar snarpa gagnrýni á köflum og vakandi varðstöðu um málið okkar bestan arf.

    Miðbæjaríhaldið

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>