Jóhanna Kristjánsdóttir, mín gamla vinkona og skólasystir, kvartar yfir því á fésbókinni að lítt sé skrifað um málfar í fjölmiðlum. Hér hafa verið birtir 118 pistlar ,- langflestir um ambögur og hortitti. En vissulega hefur einnig verið vikið að ýmsu öðru. Pistlarnir gætu verið fleiri,- það er nógu að taka.
Í fréttum Stöðvar tvö (05.08.2009) var sagt frá því að vinsæll kóalabjörn hefði verið aflífaður í Ástralíu , en hann var með ólæknandi sjúkdóm. Svo var tekið til orða að hann hefði verið mörgum harmadauði. Það orð er ekki til í okkar máli. Við tölum um harmdauða og harmagrát.
Einhver ótrúlegasta frétt,sem lengi hefur heyrst er að formaður Framsóknarflokksins hafi krafist þess að sendiherrar erlendra ríkja mætttu til yfirheyrslu á fund utanríkismálanefndar. Fréttin segir okkur að formaðurinn veit ekki mikið um gangverk stjórnkerfisiins eða samskipti við erlend ríki og fulltrúa þeirra. Framsóknarmenn ættu að senda formann sinn á skólabekk.
Hafi einhver hyggju á að, var sagt í fréttum Stöðvar tvö ((04.08.2009), Hér ruglað saman. Annað hvort hefði átt að segja: Hafi einhver í hyggju eða hafi eihver hug á.
Það hlýtur að vera Sjónvarpi ríkisins mikið áhyggjuefni hve auglýsingar í sjónvarpi hafa hraðminnkað. Aðalauglýsingarnar eru nú dagskrárkynningar og auglýsingar um eigið ágæti Ríkisútvarpsins og þeirra sem þar starfa, en þar starfar auðvitað margt ágætisfólk.
Í fljótu brgaði sýnist mér að Ríkissjónvarpið sé að verða undir í samkeppninni við Stöð tvö, ÍNN og Skjá einn.
Í guðanna bænum, stjórnendur Rúv, færið okkur aftur gömlu Rás eitt á morgnana og hætttið þessu morgunfrúarbulli. Þetta segi ég sem einn af eigendum RÚV, en við erum auðvitað bara til að guma af íauglýsingum um ágæti stofnunarinnar . Ráðum engu. Svo mætti einhver í tónlistardeildinni segja morgunfrúnni að ljóðrænt , venjulega stutt tónverk´sem á ensku heitir Romance, er ekki kallað rómans á íslensku, heldur rómansa. Alla vega veit ég ekki betur en viðurkenni þekkingarleysi mitt á sviði tónlistarinnar.
Hlýddi á stórkostlega flaututónleika í Skálholtskirkju í gærkveldi. Óvenjulegir tónleikar, glæsilegir, Frábært listafólk,sem skilaði sínu með sæmd. Yndisleg kvöldstund.
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
07/08/2009 at 17:52 (UTC 1)
Góður pistill, Ben.Ax. Ekki veit ég hvað til bragðs skal taka. Hvernig væri að Blaðamannafélagið beitti sér fyrir árlegum námsskeiðum þar sem farið væri yfir þessar á að giska tvö, þrjú hundruð ambögur sem sífellt ganga aftur ? Svo mætti líka gera lista yfir ambögurnar. Árni Böðvarsson mun hafa samið slíkan lista þegar hann var málfarsráðunautur Ríkisútvarspsins. Líklega hefur listinn týnst er flutt var í Efstaleitið. Kannski var honum bara hent.
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson) skrifar:
07/08/2009 at 14:54 (UTC 1)
Sæll. Ég hef bæði verið íslenskukennari og prófarkalesari og því oft spurt mig hvort það þjónaði einhverjum tilgangi, öðrum en að skemmta sér, að benda á vitleysurnar hjá fjölmiðlafólki. Allir eru vonandi að gera sitt besta en í þessari stétt hafa alltaf verið misjafnir sauðir í mörgu fé. Misjöfnu sauðunum fjölgar hins vegar af eðlilegum ástæðum. Unga fólkið er fjarlægara uppruna málsins en við. Það þekkir ekki bullustrokk og því kemur annað hljóð í skrokkinn. Mörg orðtök tengjast fornum og aflögðum búskaparháttum og því er varla hægt að ætlast til þess að ungt fólk geri sér alltaf grein fyrir því hvort það er að fara með rétt mál eða rangt en oft finnst mér að blaðamenn mættu kanna málið ef þeir eru í minnsta vafa í stað þess að segja t.d. (Fréttablaðið) að Þráinn Bertelsson hafi haft ávinning af því að stjórnin byggist við skýringum á kosningunni. Verst finnst mér þó þegar fréttamenn eru svo skyni skroppnir að þeir átta sig ekki betur á ættartengslum en svo að þeir segja föður vera frænda sonar síns. En kannski er þetta fornnorræna.