Fínn þáttur Á bláum nótum í bland hjá Ólafi Þórðarsyni á Rás eitt (17.07.2010) með Mills bræðrum. Ólafur hefur líklega fundið diskana Mills Brothers Chronological (Vol.1-5). Takk fyrir þáttinn, Ólafur. Þeir bræður heyrast alltof sjaldan á öldum ljósvakans. Molaskrifari á rúmlega 20 geisladiska með söng þeirra bræðra og fær seint , – aldrei nóg af þeim. Ríkisútvarpið á reyndar í fórum sínum tvo þætti, sem Molaskrifari gerði um Millsbræður fyrir 8-9 árum. Þeir verða auðvitað aldrei endurfluttir meðan Molaskrifari gagnrýnir RÚV. Það er auðvitað í besta lagi.
Það var svolítið óvenjulegt (15.07.2010) að heyra talsmann slökkviliðsmanna neita að svara spurningu fréttamanns um hverjar kröfur slökkviliðsmanna væru í yfirstandandi kjaradeilu. Varla getur kröfugerðin verið trúnaðarmál. Eða hvað ?
Aftur og aftur sér þess stað í fréttum að ekki er lengur kennd landafræði í skólum á Íslandi: Þrjú hjólhýsi hafa fokið í kvöld á þjóðveginum vestan við Höfn í Hornafirði, að Djúpavogi. (af heimasíðu RÚV 16.07.2010). Í fréttinni kom fram að öll höfðu hjólhýsin fokið austan við Höfn. Í Efstaleitinu eru menn svolítið áttavilltir.
Ríkissjónvarpið sýndi ágætt inskot frá Umferðarstofu (15.07.2010) um hjólreiðamenn í umferðinni. Þar hefði að skaðlausu mátt koma fram að hjólreiðamenn eiga ekki réttinn á gangbrautum yfir götur, nema þeir leiði hjólið, – það er að segja séu gangandi vegfarendur, en ekki hjólreiðamenn.
Molaskrifari hefur lengi haldið því fram að íþróttadeild og auglýsingadeild Ríkisútvarpsins réðu miklu um dagskrá útvarps og sjónvarps. Þetta hefur nú verið staðfest. Í helgarblaði DV (16.-18.07.2010) kemur nefnilega fram að auglýsingastjóri RÚV situr í dagskrárráði Rásar 2 og markaðsstjóri RÚV situr í dagskrárráði Sjónvarpsins. Þarf frekar vitnanna við ? Nú skilur fólk betur af hverju Sigmar Guðmundsson Kastljóssstjóri fékk bágt fyrir að tala um auglýsingahórarí m.a. á Rás tvö. Kannski verður Ríkisútvarpið bráðum eins og Útvarp saga þar sem mörkin milli dagskrárefnis og auglýsinga eru löngu horfin.
Merkilegt fyrirbæri er annars Útvarp Saga. Þar er talað um hugmyndir AGS í skattamálum eins og þegar sé búið að samþykkja þær og matarverð hækki á morgun og eldsneytisverð daginn þar á eftir. Hvílíkt rugl. Svo er of mikið um óhróður og ósannindi hjá afkastamestu þátttastjórnendum.
Úr dv.is (16.07.2010): Báðar lofa þær Jónína og Þórdís Jóna fögrum fyrirheitum um lengra líf án erfiðra sjúkdóma og aukið hreysti þátttakenda. Þannig geti þeir átt til að mynda von á því að losna við alzheimer, athyglisbrest, krabbamein, sykursýki og þunglyndi með því að ganga í gegnum meðferðina. Í grunninn sé það einfalt að halda sé heilbrigðum með því að fylgja ráðum þeirra Jónínu eða Þórdísar Jónu.
Um málfar: Í fyrsta lagi: Það er ekki hægt að tala um að lofa fögrum fyrirheitum. Við tölum um að gefa fögur fyrirheit eða lofa einhverjum einhverju. Í öðru lagi: Orðið hreysti er kvenkynsorð, ekki hvorugkynsorð. Þessvegna á að tala um aukna hreysti. Aukið hreysti er bara bull.
Loks er rétt að nefna að ef þessar konur þykjast geta læknað Alzheimersjúkdóminn, athyglisbrest, krabbamein, sykursýki og þunglyndi ætti embætti landlæknis að kanna málið. Ef þær fullyrða þetta eru þær að að blekkja veikt fólk. Það er ljótt.
Skildu eftir svar