Nýlega heyrði ég endurtekinn útvarpsþátt á Útvarpi Sögu. Þetta var reyndar ekkii þáttur í eiginlegum skilningi heldur langdregið lof um tiltekið fyrirtæki og framleiðslu þessu. Átti í rauninni ekkert skylt við alvöru dagskrárgerð. Umsjónarmaður átti erfitt með að halda sig við íslensku og hrópaði upp:“ I don´t believe you! „, þegar viðmælandinn náði hæðum í hrósi á framleiðslunni.Voru konurnar þó báðar íslenskar.
Verið var að auglýsa meðlæti , kökur og tertur í fermingarveislur. Hámarki náðu lýsingarnar ,þegar boðið var upp á sálmabók úr marsipani til að hafa með kaffinu eftir ferminguna. Mikið var gert úr fegurð bakkelsisins og sjálfsagt hefur bragðið verið eftir því.
Hvað næst? Biblía á borðum fermingarbarna með bláberjum og þeyttum rjóma !!!!!!
Skildu eftir svar