Hvenær ætla fjölmiðlamenn að spyrja hina sjálfskipuðu talsmenn svokallaðra Hagsmunasamtaka heimilanna beittra og meitlaðra spurninga um samtökin og starfsemi þeirra ? Við eigum að fá að vita fulltrúar hverra þeir eru og fróðlegt væru að þeir gerðu almenningi grein fyrri eigin skuldastöðu. Eins og er gleypa fjölmiðlar allt hrátt,sem frá þessu fólki kemur og marklaus gífuryrðin falla dauð.
Í morgunfréttum Ríkisútvarps (18.10.2010) var sagt: Bílaeigendur hamstra nú eldsneyti sem best þeir geta. Eðlilegra hefði verið að segja: … hamstra nú eldsneyti,sem mest þeir mega.
Umsjónarmaður Rásar tvö í Efstaleitinu (20.10.2010) sagði okkur, að í DV væri viðtal við þriggja barna faðir ! Hvernig væri að málfarsráðunautur kenndi þessu fólki hvernig orð eins og faðir, móðir, systir,og bróðir beygjast ? Kannski leyfir hið alkunna umburðarlyndi í Efstaleiti svona villur.
Í spjalli við Kristján Þór Júlíusson (20.10.2010) meðal annars um utanríkisþjónustuna opinberuðu umsjónarmenn Rásar tvö fáfræði sína með eftirminnilegum hætti. Þeir höfðu ekkert kynnt sér málið. Einkaskoðanir umsjónarmanna koma okkur hlustendum ekki við.
Vinsamleg ábending til fréttastofu Ríkisútvarps: Höfnin á suðurströndinni heitir ekki Landeyjarhöfn, eins og ritað er á fréttavef Ríkisútvarpsins og sagt var (heyrði ekki betur) í sjónvarpsfréttum (18.10.2010). Höfnin heitir Landeyjahöfn. Þetta er ekki mjög flókið.
Fróðlegt var að heyra Gunnar Kvaran fréttamann spyrja viðmælanda sinn í umfjöllun um Sigtúnshópinn svonefnda 1983: Ertu með stóra íbúð? Já, ég er með 110 fermetra íbúð var svarið. Þetta var rifjað upp í Vítt og breitt, morgunþætti Rásar eitt (18.10.2010) . 110 fermetra íbúð þykir frekar lítil íbúð á Íslandi árið 2010!
Molaskrifari hefur lítið hlustað á Útvarp Sögu að undanförnu. Heyrði endurtekið viðtal við umboðsmann skuldara (18.10.2010). Það sem Molaskrifari heyrði nægði til að sannfæra hann um að umboðsmaður skuldara er ekki líklegur til stórafreka og þetta sýnist ekki öflugt embætti eftir málflutningi umboðsmannsins að dæma. Malflutningurinn var ósannfærandi,- ekki skal minnst á málfarið. Það er skaði. Þarna virðist ekki vel hafa tekist til. Útvarp Saga heldur annars áfram bulli sínu um neyðarstjórn og utanþingsstjórn. Þar breytist ekkert.
Fínir þættir Árna Blandon á rás eitt á sunnudagskvöldum um Niflungahringinn. Hversvegna getur Ríkissjónvarpið ekki sýnt okkur sígild verk, óperur eða tónleika einu sinnin eða tvisvar í mánuði? Norrænu ríkisstöðvarnar NRK2 og SV2 bjóða skyldugreiðendum sínum slíkt efni að minnsta kosti vikulega. Líkleg skýring er að dagskrárstjórar Ríkisútvarpsins þori ekki að bjóða okkur slíkt efni vegna gagnrýni frá hinu háværa fótboltaliði,sem fær allar sínar óskir uppfylltar í Efstaleitinu. Nú skal enn aukið vægi íþrótta í dagskránni með sérstökum vikulegum handboltaþætti með sérstökum umsjónarmanni og sérstökum álitsgjafa. Handbolti er ágætur, en íþróttir eiga ekki að hafa algjöran forgang í dagskránni eins og nú er.
Skildu eftir svar