«

»

Sagan endurtekur sig

 Flakkarar  fyrri ára    minnast þess að á Kastrupflugvelli var íslensku flugfélögunum jafnan úthlutað  stæði eins  langt  frá aðalbiðsalnum og mögulegt var, við útgönguhlið  24 eða  25.  Þangað var býsna langur gangur.  Sumir sögðu að þetta  bæri   vott um kærleik Dana í garð Íslendinga,en   aðrir sögðu að  stæðin lengst frá  biðsalnum  væru ódýrari en þau  þau sem nær væru. Minnisstæðasta  ferð mín eftir  þessum langa gangi var í janúar 1972. Þá  fór ég ganginn  langa endilangan  á hlaupahjóli með  handfarangur og  þrjár  tveggja   tommu myndbandsspólur , -sjálfsagt ein sex-sjö kíló. Vélin hafði hinkrað eftir mér  í   15 mínútur  eða  svo. Á spólunum voru upptökur   af beinni útsendingu  danska sjónvarpsins  frá útför  Friðriks konungs  IX,  þá um morguninn, sem  sýndar  voru  svo í  íslenska sjónvarpinu um kvöldið. Þá var það mikil  nýlunda  að erlent  efni   væri  samdægurs á  skjánum á Íslandi. Ég hafði lýst athöfninni í upptökunni  í danska  ´sjónvarpshúsinu um morguninn,  en þegar til átti  að taka  var  engin lýsing á   spólunni.  Danskur tæknimaður hafði tengt rangt, og ég hafði   bara verið að tala  við sjálfan mig. .Ég endurtók því lýsinguna í beinni útsendingu um kvöldið og  var raunar bara  gott að hafa fengið æfingu um morguninn ! Þetta var  nú innskot. En á   Reykjavíkurflugvelli endurtekur  sagan sig með  öðrum formerkjum. Þotur  færeyska flugfélagsins Atlantic Airways eru jafnan   settar  eins  langt frá  afgreiðsluskúrunum og mögulegt  er. Oftar en ekki þurfa farþegar að ösla polla og berjast á  móti  eða hrekjast  undan  suðaustan rokinu og rigningunni. Svona  endurtekur sagan sig. Þetta stendur þó  vonandi  allt  til bóta með nýrri  samgöngumiðstöð við flugvöllinn, –  flugvöllinn  sem  vonandi   fær að  vera í friði til frambúðar.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>