Eftirfarandi má lesa á fréttavef Morgunblaðsins í dag:
:“Fimm ökumenn voru teknir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis.” Spurt er: Hver tók þessa menn af lögreglunni ?
Af hverju ekki germynd ?
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handsamaði fimm ökumenn í nótt grunaða um ölvun við akstur.
Úr næstu frétt á mbl.is:
“Sá sem beitti hnífnum var handtekinn af lögreglu”.
Af hverju ekki germynd?
Lögreglan handtók þann sem beitti hnífnum.
Óþarft þolmyndarþrugl.
Skildu eftir svar