Sérkennileg „frétt“ var í seinni fréttatíma Ríkissjónvarpsins í gærkveldi. Þar voru birt viðtöl við tvo starfsmenn Veðurstofu Íslands um það hvort hafíseftirlit Veðurstofunnar væri nægilega gott. Horfendur/hlustendur voru engu nær eftir viðtölin. Stutt er síðan fréttastofa Ríkissjónvarpsins varði miklum tíma í að fjalla um meint einelti á Veðurstofunni.
Nú er spurt: Lítur fréttastofa Ríkissjónvarpsins á það sem sérstakt hlutverk sitt að viðra fyrir landsmönnum ímyndaðar eða raunverulegar innanhússerjur á Veðurstofunni ?
Hvað er á seyði í Efstaleitinu ?
Skildu eftir svar