«

»

„Er að valda“

Á þessum  stað var fyrir nokkru vikið að hinni nýju nafnháttarsýki,sem  nú verður æ algengari  og breiðist  raunar út eins og eldur í sinu.

Í hádegisfréttum  RÚV var í dag  rætt  við  hagfræðing  hjá Glitni. Í örstuttu  viðtali sagði  hagfræðingurinn tvisvar sinnum  „er að valda“ og  tvisvar sinnum „höfum verið að sjá“. Hversvegna ekki „veldur“ og  „höfum séð“. Einfaldara, réttara og fallegra.

Það væri  góð  fjárfesting  fyrir stórfyrirtæki eins og bankana  að  kenna  starfsfóilki sínu að  tjá  sig   skammlaust á íslensku. Það  væri líka  traustvekjandi.

Það  var  svo ekki upplífgandi í kvöldfréttum  Ríkissjónvarpsins að heyra  framhaldsskólakennara  tala um „þrjú kennaralaun“.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>