«

»

Svolítið síðbúið hrós um grein skálds

Ef ég vildi að margir læsu þessar línur,þá ætti fyrirsögnin að vera í þessa áttina: „Hrós um grein Hannesar.“ Þá væri hún í nútímablaðamennskustíl, – menn héldu að ég væri að hrósa Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni ( sem reyndar er hvorki skáld né rihöfundur) En það er mjög til siðs í nútímafjölmiðlun að búa til villandi fyrirsagnir til að blekkja fólk til að lesa fréttir.

Nei, ég er að hrósa grein Hannesar Péturssonar , ljóðskálds og rithöfundar. Greinin birtist á blaðsíðu 29 í Morgunblaðinu laugardaginn 9. maí. Hún heitir í allri hógværð: „Það var nú það.“

Þetta er einhver albesta blaðagrein sem ég hef lengi lesið. Það er  svo mikill sannleikur  í henni. Lesið hana.

 

4 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Oft er það þannig , þegar rökin skortir, að menn bregða á það ráð að tala um útúrsnúninga, yfirlæti  og  hroka. Það eru  nú bara venjubundin  rökþrotaviðbrögð og við því er  svo sem ekki margt að segja.

  2. Jón Óskarsson skrifar:

    Ég las grein skáldsins eftir þinni ábendingu og ég verð að segja að mér finnst hún full af hroka, útúrsnúningum og yfirlæti. 

    Skáldinu þóknast að taka ummæli eins ráðamanns og snúa út úr þeim og tala um þau af miklum hroka. 

    Verð að taka undir með Sigurði hér að ofan.

  3. Eiður skrifar:

     Svona getur menn greint  á, Sigurður Þór.  Hvorki get ég  skilið það svo, sem lesandi, að Hannes  sé að tala niður  til mín eða setja sig á háan hest. Hannes er  að segja skýrt það sem margir  hugsa. Ég endurtek að mér finnst grein hans  með því besta sem ég hef lengi lesið.

    Þegar ég  hinsvegar les á bloggsíðu Páls Vilhjálmssonar  orð eins og  kvislingar og  júdasar,  þá  finnst mér  ekki talað niður til lesenda heldur verð ég orðlaus og það   fer  hrollur um mig. HVað gengur mönnum  til  með slíkum  samlíkingum ?

  4. Sigurður Þór Guðjónsson skrifar:

    Greinin sjálf er hins vegar ekki tiltakanlega hógvær hvað sem efni hennar líður. Hannes talar niður til lesenda og setur sig á háan hest. Mér finnst þetta ekkert sérstök grein. Menn bera bara virðingu fyrir nafni höfundarins.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>