«

»

Fjölmiðill á fallanda fæti

 Mér hefur alltaf verið heldur hlýtt  til Morgunblaðsins. Jafnvel  borið  svolitla  virðingu  fyrir því. Það hefur verið gott blað, traustur fréttamiðill vandur að virðingu sinni.   Nú virðist sem  verulega hafi verið slakað á  gæðakröfum í ranni Morgunblaðsins. Mogginn er   fjölmiðill á fallanda fæti  Málfari á vef blaðsins og jafnvel í blaðinu sjálfu hefur hrakað mjög . Bögubósar vaða uppi.Prófarkalestur varla  til.Þetta er slæmt. Ekki skánar það,   þegar blaðið  flytur  fréttir,  sem  eru í meginatriðum rangar. Steininn tekur úr, þegar  skrifaður er leiðari þar sem lagt er út af  hinni  röngu frétt. Þar var reynt að koma því inn hjá almenningi að slakað hafi verið á öryggiskröfum hjá  Icelandair. Verst finnst mér, að blaðið  skuli ekki birta afsökunarbeiðni, þegar  talsmaður Icelandair hefur  af hógværð og  kurteisi bent á     Morgunblaðið hafi farið rangt með. Þannig  getur  fjölmiðill,  sem  vill  vera marktækur, ekki komið fram  gagnvart lesendum sínum. Morgunblaðið er ekki óskeikult og það á    viðurkenna það.  Ég hef  meira  að segja  einhversstaðar  hrósað Morgunblaðinu fyrir að birta  leiðréttingar ,sem  ljósvakamiðlar gera helst  ekki, nema  farið sé  rangt með  nöfn. Hafi leiðrétting Morgunblaðsins farið fram hjá mér, þá skal þetta auðvitað  dregið  til baka. “Dyr á  farþegavél Icelandair opnuðust…” , sagði Morgunblaðið. Hið rétta var að  lúga 30×60 sm  neðan til á  skrokki vélarinnar, alls ótengd farþegarými hafði opnast.”  Þótt þetta óhapp hafi orðið, sem  flugmenn brugðust rétt við og engin athugasemd  hefur verið gerð  við, hef ég  ekki nokkra  trú á að slakað hafi verið á öryggiskröfum hjá  Icelandair. Það er  hinsvegar deginum ljósara, að mjög hefur verið slakað á  gæðakröfum hjá  Morgunblaðinu. Þetta var einfaldlega   illa  unnin  frétt og  enn verri leiðari.Lesendur blaðsins eiga betra skilið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>