«

»

Molar um málfar og miðla CXXXIX

Áhugamaður um tunguna benti Molahöfundi á eftirfarandi klausu í Vefmogga:„Báturinn hefur hlotið nafnið Le Dré en skírnarathöfn undir stjórn Peters Bürchers biskups kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, fór fram í Hafnarfjarðarhöfn fyrir sjósetningu bátsins.“ Síðan spyr sá sem rak augun í þetta: „Er unnt að skíra bát? Er skírn ekki það, þegar maður er tekinn í samfélag kirkju? Getur bátur gerst slíkur félagi? Er honum ekki gefið nafn?“ Auðvitað er þetta hárétt. Bátar og skip eru ekki skírð. Þeim eru gefin nöfn. Svo má bæta við að sagt er að þessi athöfn hafi farið fram „í Hafnarfjarðarhöfn fyrir sjósetningu bátsins“. Ef báturinn hefur verið í Hafnarfjarðarhöfn hefur verið búið að sjósetja hann.

Þetta minnir á notkun sagnarinnar að vígja, sem nú er orðið algengt að nota þegar ný mannvirki eru tekin í notkun. Þegar Molaskrifari skrifaði fréttir fyrir meira en þrjátíu árum var lögð rík áhersla á að ekki væri sagt að mannvirki væri vígt, nema prestvígður maður blessaði það og þá sem það notuðu. Nú má nota orð Torfa Erlendssonar sem á að hafa sagt „allan andskotann vígja þeir“, þegar Hallgrímur Pétursson var vígður til embættis sem prestur á Hvalsnesi.

Í sjö fréttum RÚV í morgun (01.09.2009) sagði fréttamaður „að lán hefði verið neytt upp á Íslendinga“. Þetta er rangt. Hann hefði átt að segja að láni hefði verið neytt upp á Íslendinga. Það er talað um að neyða einhverju (þgf.)upp á einhvern. Ambagan var endurtekin í áttafréttum. Heyrnartækin eru ekki í lagi í Efstaleitinu.

Margt er skrítið í  dagskrárgerð  RÚV. Mér er til  dæmis  algjörlega óskiljanlegt hversvegna Kastljós er  endursýnt klukkan að ganga  tvö að nóttu. Langflestir  þeirra sem missa  af Kastljósi á venjulegum útsendingartíma geta  horft á þáttinn á netinu.  Eldri borgarar sem  ekki eru  með  tölvu vaka  varla  eftir   endursýningu fram á miðja nótt. Ef  nauðsynlegt er að  endursýna Kastljós ætti að gera það  á skikkanlegum tíma  daginn eftir frumsýninguna.Raunar eru  þessir þættir oft þannig að ekki er nokkur ástæða til að endursýna þá.  Varla getur  verið að endursýningin  sé  einhverskonar launauppbót  starfsmanna.  Því vil ég alls ekki trúa.

 Sagt  er frá  verðhækkunum á ýmsum matvörum í fjölmiðlum  í dag. Bónus , þar sem  Molaskrifari  verslar jafnan  tók forskot á  sæluna. Lítil  ferna  af  jógúrt  frá  Húsavík hafði í gær (31.08.2009)hækkað úr  167 kr. í  172 kr. Kostaði  reyndar  fyrir  10  dögum eða  svo  163 kr.

 

5 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eygló skrifar:

    Auðvitað „leyfist“ ýmislegt í munni þótt það eigi alls ekki við á prenti.

    Svo „skírir“ fólk gæludýrin sín, dúkkur eru „skírðar“, bílar eru skírðir í hausinn á eða eftir einhverjum.

    Mikil hlýtur blessunin að vera 🙂

    Ég held að fólk hafi almennt tekið út „helgihlutann“ þannig að nefna verður það sama og skíra. Þ.a.l. skírir það hvað sem er.  Skýrir þetta mál mitt?   

  2. Eiður Svanberg Guðnason skrifar:

     Sæl Eygló, – jú,jú auðvitað þekkir maður þetta úr  talmáli  notað  á þann hátt sem þú lýsir. En ég kann ekki við þegar fréttamenn segja að  brú hafi verið vígð, –  nema  vígður maður  hafi beðið mannvirkinu og vegfarendum  blessunar. Hafi  svo ekki verið  var  brúnin  opnuð  fyrir umferð   eða  tekin í notkun.

  3. Eygló skrifar:

    Þegar ég var styttri í annan endann og einhverjum áskotnaðist e-t fat eða skór, var alltaf talað um að maður hefði verið að vígja nýju peysuna, eða ætlarðu ekki að vígja nýju stígvélin þín?

    En pabbi og mamma voru auðvitað guðlausir prakkarar 🙂  og hefðu sennilega ekki látið þetta sjást á prenti 🙂

  4. Gústaf Hannibal skrifar:

    Ein vinsamleg ábending; Internetið og þ.a.l. Netið er skrifað með stórum staf.

  5. Bolli Valgarðsson skrifar:

    Við vorum einmitt að ræða það í gærkvöldi við hjónin, hvers vegna í ósköpunum dagskrá Sjónvarpsins stæði stundum til að ganga þrjú á næturna á virkum dögum, hvað þá nú þegar allir eru að skera niður kostnað.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>