«

»

Brandari ársins !

Lokasetning fréttatilkynningar þingflokks Sjálfstæðisflokksins  hlýtur að vera  brandari ársins:

En þingflokkur Sjálfstæðisflokksins mun eftir sem áður vinna af heilindum og málefnalega að þeim úrlausnarefnum sem fyrir liggja með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi.

mbl.is Hafna því að hafa rofið trúnað

6 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Jón Ingi Cæsarsson skrifar:

    Er þetta ekki löng prentvilla ?

  2. Pétur Ásbjörnsson skrifar:

    Það er varla hægt að svara svona ummælum og sjálfstæðisflokkurinn vinnur af heilindum.

  3. Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson) skrifar:

    Sammála þér, Eiður. Kalli Sveins veit vonandi að Jóhanna er að reyna að bæta það sem miður fór í tíð fyrrverandi ríkisstjórna. Hingað til hefur það gengið hægt og rólega en vonandi hressist Eyjólfur.

  4. Kalli Sveinss skrifar:

    Æ,Æ ! – “ Hverju reiddust goðin“ ?

     Grátlegt, já nærri átakanlegt, hvað aumingja Jóhönnu eru orðnar mislagðar hendur .

     Hennar tími búinn !!

  5. Eiður Svanberg Guðnason skrifar:

    Orð eru eitt, gjörðir annað. Það var sannkölluð heilindavinna  þegar þingmenn Sjálfstæðisflokksins  notuðu andsvarareglur  þingskapa  til að  tuða  hver  við annan  í innihaldslausum ræðum á þinginu í sumar. Það var ekki málefnalegt. Það voru ekki  heilindi. Það var ekki einu sinni skemmtilegt !

  6. Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson) skrifar:

    Þetta finnst mér fallega sagt. Viljum við ekki öll vinna af heilindum og málefnalega að þeim úrlausnarefnum sem fyrir liggja með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi? Ég hefði ekki getað orðað þetta betur.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>