«

»

Molar um málfar og miðla CLV

Merkilegt fyrirbæri Útvarp Saga. Þar vellur bullið oft fram í stríðum straumum. Nú vill útvarpsstjórinn fá utanþingsstjórn. Mikill barnaskapur er að halda að það breyti einhverju.Vill líka skipta út öllu þingliðinu. Víst er ekki valinn maður í hverju rúmi á Alþingi og hefur aldrei verið. En það eru kjósendur sem velja menn til setu á Alþingi. Helst á að losna við alla stjórnmálaflokkana sem nú starfa. Athyglisverð tillaga í ljósi stuttrar sögu Borgarahreyfingarinnar. Þáttastjórnandi lýsti því yfir nýlega að fólk ætti að taka allt sitt fé út úr bönkunum og svo ætti að stofna nýjan banka , einhverskonar „ alþýðubanka“sem hann kallaði. Þennan sama þáttastjórnanda heyrði ég garga á hlustanda ,sem hringt hafði til þáttarins. Hlustandinn gargaði móti. Þegar þeir höfðu gargað hvor á annan um stund slökkti Molaskrifari á útvarpinu. Góður takki slökkvarinn.

En engum er alls  varnað.  Sigurður  G.  Tómasson er rödd skynseminnar í Útvarpi Sögu.  Hann er   afbragðs útvarpsmaður,einn sá allra besti. Fjölfróður og kurteis við þá sem  hringja  til hans í beinni útsendingu og ekki  skemmir  Guðmundur  þegar hann situr  við hljóðnemann  hjá honum. Velkomin  tilbreyting  að heyra  aftur í þeim saman. Það var til dæmis  fróðlegt að heyra þá tala um   Framsóknarsukkið í kringum  gömlu   Símahúsin við  Austurvöll og  væntanlegt hótel þar. Það  mál er  tilvalið  verkefni  fyrir öfluga rannsóknarblaðamennsku.

Í  fyrstu jólainnkaupaauglýsingunni (of langt orð!),sem  birtist  fyrir  fáeinum dögum, er  orðið ilmur  notað í fleirtölu,ilmir.  Þetta fellir  Molaskrifari sig illa  við. Fleirtölumynd  þess orðs er ekki  til í beygingalýsingu íslensks máls  á  vef Árnastofnunar. Það  er gamalt og  gilt  að tala um  ilmvatn og þess vegna ilmvötn, eða hvað ?

Bjarndýr réðist á ferðamenn í Japan og  stórslasaði níu þeirra áður en hann var skotinn til bana í minjagripaverslun. Svona  tók  fréttaþulur  í fréttum  Stöðvar tvö  (20.09.2009) til orða.  Hefði átt að  segja… áður en það var  skotið  til bana. Þetta er   dæmi  um það  að fréttaþulur er ekki með hugann við lesturinn, heyrir ekki hvað hann sjálfur  segir. Óþarfa ambaga. Ekki hefði  heldur  skaðað að taka fram að þetta var skógarbjörn. Þegar talað er um bjarndýr  dettur  flestum  fyrst í hug ísbjörn.

Sérkennilegt  orð sá dagsins ljós  á  skjá RÚV  í fréttum (21.09.2009)og hafði nokkuð langa viðdvöl á skjánum.Það var orðið sönnunarbirgði. Skemmst er frá því að segja að þetta orð er ekki  til. Þarna átti örugglega að standa  sönnunarbyrði,   sem er  eins og segir í  Íslenskri orðabók:  Sú skylda (málsaðila) að sanna málstað sinn.Þetta eru ekki  þau faglegu og  vönduðu  vinnubrögð sem RÚV básúnar í auglýsingunni um  eigið ágæti. . Það er   til prýðileg   stafsetningarorðabók frá  JPV bókaútgáfunni sem  gott er að   styðjast við (Útg. 2006). Þetta er svona grunnskólavilla,ef þannig má að orði komast.  Það var heldur ekki af hinu góða, þótt  sumum finnist kannski smátt, að  í tíufréttum RÚV  sjónvarps (21.09.2009) heyrði ég ekki betur  en  fréttaþulur talaði um Vesturdalseyri,en fréttamaður á heimaslóð sagði  réttilega Vestdalseyri. Fréttamenn í Reykjavík þurfa helst að þekkja landið sitt  svona sæmilega.

4 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Cilia skrifar:

    ég tók einmitt eftir þessu orði sönnunarbirgði í gær og þvílíkt sem það stakk mig!

  2. Guðrún María Óskarsdóttir. skrifar:

    Það er ekki sama hvort menn eru gagnrýnir á bæði vinstri og hægri menn eins og Útvarp Saga er, sýnist mér á þessum pistli.

    kv.Guðrún María.

  3. Þorgrímur Gestsson skrifar:

    Að þekkja landið, helstu staði, bæði bæi, sveitir, dali osfrv., var ófrávíkjanleg krafa á gömlu, góðu Fréttastofu Útvarps – og maður skyldi einnig hafa réttar forsetningar, þ.e. í eða á, eftir því sem við átti  – og á. Þetta hefur slappast ógurlega, ásamt svo allt of mörgu öðru.

    Enn og aftur, takk fyrir að standa málfarsvaktina, Eiður!

  4. Steini Briem skrifar:

    Það er einnig hægt að tala um tvenns konar og þrenns konar ilm, margs konar eða ýmiss konar ilm.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>