«

»

Molar um málfar og miðla 355

Fínn þáttur  Á bláum nótum í bland  hjá Ólafi Þórðarsyni á Rás eitt (17.07.2010) með Mills bræðrum. Ólafur hefur líklega fundið diskana Mills Brothers Chronological (Vol.1-5).  Takk fyrir þáttinn, Ólafur. Þeir bræður heyrast alltof sjaldan á öldum ljósvakans. Molaskrifari á rúmlega 20 geisladiska með söng þeirra bræðra  og fær seint , – aldrei nóg af þeim. Ríkisútvarpið á  reyndar í fórum sínum tvo  þætti, sem  Molaskrifari gerði um Millsbræður fyrir 8-9 árum. Þeir verða  auðvitað aldrei endurfluttir meðan Molaskrifari gagnrýnir  RÚV.   Það er auðvitað í besta lagi.

 Það var svolítið óvenjulegt (15.07.2010) að heyra talsmann  slökkviliðsmanna neita að svara spurningu  fréttamanns um hverjar kröfur slökkviliðsmanna væru í yfirstandandi kjaradeilu. Varla getur kröfugerðin verið  trúnaðarmál. Eða hvað ?

Aftur og aftur sér þess stað í fréttum að ekki er lengur kennd landafræði í skólum á Íslandi: Þrjú hjólhýsi hafa fokið í kvöld á þjóðveginum vestan við Höfn í Hornafirði, að Djúpavogi.  (af heimasíðu RÚV 16.07.2010). Í fréttinni kom fram að öll höfðu hjólhýsin fokið austan við Höfn. Í Efstaleitinu eru menn svolítið áttavilltir.

  Ríkissjónvarpið sýndi ágætt inskot frá Umferðarstofu (15.07.2010)  um hjólreiðamenn í umferðinni. Þar hefði  að skaðlausu mátt koma fram að hjólreiðamenn eiga ekki réttinn á gangbrautum yfir  götur, nema  þeir leiði hjólið, – það er að segja séu gangandi vegfarendur, en ekki hjólreiðamenn.

  Molaskrifari hefur lengi haldið því fram að  íþróttadeild  og auglýsingadeild  Ríkisútvarpsins réðu miklu um dagskrá  útvarps og  sjónvarps. Þetta hefur nú verið staðfest. Í helgarblaði DV (16.-18.07.2010) kemur nefnilega fram að auglýsingastjóri RÚV  situr í dagskrárráði Rásar 2 og markaðsstjóri RÚV  situr í dagskrárráði Sjónvarpsins.  Þarf frekar vitnanna við ?  Nú skilur fólk betur  af hverju  Sigmar Guðmundsson Kastljóssstjóri fékk bágt fyrir að tala um  auglýsingahórarí m.a. á Rás tvö.   Kannski verður Ríkisútvarpið bráðum eins og Útvarp saga  þar sem mörkin milli dagskrárefnis og auglýsinga eru löngu horfin.

   Merkilegt fyrirbæri  er annars Útvarp Saga.  Þar  er talað um hugmyndir  AGS í skattamálum  eins og þegar sé  búið að samþykkja þær og matarverð hækki á  morgun og  eldsneytisverð daginn þar á eftir. Hvílíkt rugl. Svo er of mikið um óhróður og ósannindi hjá  afkastamestu þátttastjórnendum.

  Úr dv.is (16.07.2010): Báðar lofa þær Jónína og Þórdís Jóna fögrum fyrirheitum um lengra líf án erfiðra sjúkdóma og aukið hreysti þátttakenda. Þannig geti þeir átt til að mynda von á því að losna við alzheimer, athyglisbrest, krabbamein, sykursýki og þunglyndi með því að ganga í gegnum meðferðina. Í grunninn sé það einfalt að halda sé heilbrigðum með því að fylgja ráðum þeirra Jónínu eða Þórdísar Jónu.

  Um málfar: Í fyrsta lagi: Það er ekki hægt að tala um að lofa fögrum fyrirheitum. Við tölum um að gefa fögur fyrirheit eða lofa einhverjum einhverju. Í öðru lagi:  Orðið hreysti er kvenkynsorð, ekki hvorugkynsorð. Þessvegna á að tala um aukna hreysti.  Aukið hreysti er bara bull.

 Loks er rétt að nefna að ef  þessar konur þykjast geta læknað  Alzheimersjúkdóminn, athyglisbrest, krabbamein, sykursýki og þunglyndi ætti  embætti landlæknis að kanna málið.  Ef þær fullyrða þetta eru þær að  að blekkja   veikt   fólk. Það er ljótt.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>