Það væri örugglega fín fjárfesting að byggja bílageymsluhús við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Furðulegt að slíkt hús skuli ekki löngu risið.
Þegar Norðmenn ákvaðu að loka Fornebu-flugvelli við Osló g gera nýjan völl á Gardemoen átti það sér langan aðdraganada og harðar pólitískar deilur urðu um staðarvalið. Þremur árum áður en Fornebu flugvelli var lokað, var bílageymslu húsið þar stækkað. Ég spurði þá einn af forráðamönnum flugvallarins hvaða vit væri í því að stækka bílahúsið , þegar vitað væri að flugvellinum yrði lokað eftir þrjú ár. Þá kostaði um 600 krónur að geyma bíl þar í einn sólarhring .
Jú , sjáðu til , sagði hann þetta er mjög arðbær framkvæmd.
Í fyrsta lagi verður húsið búið að borga sig og vel það innan þriggja ára.
Í öðru lagi er þetta bygging úr forsteyptum einingum, sem einfaldlega verða teknar niður og raðað saman annarsstaðar.
Bílageymsluhús við flugstöðina á Miðnesheiði yrði til mikillia þæginda fyrir farþega sem koma þangað á eigin bílum. Sú framkvæmd yrði áreiðanlega fljót að borga sig og mundi gefa góðan arð.
Skildu eftir svar