«

»

Takmarkalaus snilld

Stundum  finnst  venjulegum  skattborgara að  snilldinni sem  býr  í Ráðhúsinu við Tjörnina og   reyndar einnig á næsta bæ, Alþingishúsinu. séu næsta lítil takmörk sett. 
Í Ráðhúsinu  er  talað   um að   gera  nýjan  flugvöll  á Hólmsheiði eða   á Lönguskerjum úti í  hafsauga. Snertispöl  frá  Hólmsheiðinni er   Keflavíkurflugvöllur, einn stærsti og fullkomnasti   flugvöllur   við norðanvert  Atlantshaf. Samt  ræða menn í alvöru  um  Hólmsheiðarflugvöll eins og milljarðar  af  skattfé  borgaranna   skipti   engu  máli  frekar en stöðumælaklinkið í  buddunni.
Svo  kemur fram  tillaga á  Alþingi  um lestarsamgöngur  við Keflavík.  Er  nú ekki rétt að ljúka  tvöföldun Reykjanesbrautar,  svo  brösuglega ,sem  það hefur  gengið, áður en menn  fara  að tala um   lestir út og  suður.
Fyrir  örfáum árum var  hagkvæmni  lestar  til Keflavíkur könnuð. Man ég ekki betur  en  stofnkostnaðurinn hafi verið metinn  á  fjórða.milljarð. Og þótt  svo hann væri  afskrifaður á  einu bretti mundi árlegt tap  vera  á þriðja hundrað milljóna króna. Séu þessar  tölur rangar má gjarnan leiðrétta það.Stundum er talað um gullfiskaminni  kjósenda. En  það  fyrirbæri   er víðar að finna.   Hvernig  væri  að  menn kynntu sér hvernig  Norðmönnum  hefur  gengið að  láta  lestina  milli Oslóar og  Gardemoenflugvallar  bera sig?  Samt er  hún hluti  af  gömlu og  grónu   lestakerfi í Noregi.
Stundum er eins og mönnum sé ekki sjálfrátt, hvorki við  Tjörnina né  Austurvöll.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>