«

»

Frítt í strætó

Í Þórshöfn í Færeyjum er frítt í strætó, – fyrir alla. Engin skírteini. Ekkert vesen. Þetta  hefur  gefist svo vel, að nýlega var ferðum  fjölgað og þjónusta bætt.

Í Reykjavík er  rætt um að  fjölga  þeim sem  fá frítt  far en láta suma borga. Fróðlegt  væri ef reiknað  væri út  hver  kostnaðurinn er  við skírteini,  kortasölu, umsjón með  fjármunum,  etc,  etc.  Gæti  verið að  sá  kostnaður  slagaði hátt upp þær  tekjur,  sem   í  vændum  eru  frá þessum tiltölulega fáu borgandi farþegum ?

Ef  raunverulegur áhugi er á því að fá  fólk til að skilja  bílinn eftir  heima og taka á  strætó  þá á að hætta  þessari takmörkuðu  innheimtu. Þá  fyrst er líklegt að  farþegum  fjölgi . 

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Gísli Baldvinsson skrifar:

    Jamm, við fundum þetta upp…sko

  2. Berglind Steinsdóttir skrifar:

    Það hlýtur að vera bara tímaspursmál hvenær menn átta sig í Reykjavík. Tilraunin á Akureyri gekk svo vel að verkefnið var framlengt. Ég vissi ekki að Færeyingar væru svona framsýnir, gott að sjá það. Höldum þessu vakandi, þetta SKAL koma með kalda vatninu.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>