«

»

Sálmabókin með kaffinu

Nýlega heyrði ég endurtekinn útvarpsþátt á Útvarpi Sögu. Þetta  var  reyndar ekkii þáttur í eiginlegum skilningi  heldur langdregið lof um  tiltekið  fyrirtæki og  framleiðslu þessu. Átti í rauninni ekkert skylt  við alvöru dagskrárgerð. Umsjónarmaður  átti  erfitt   með að halda  sig  við íslensku og   hrópaði  upp:“ I  don´t  believe you! „, þegar   viðmælandinn náði hæðum í hrósi á  framleiðslunni.Voru konurnar þó  báðar íslenskar.

Verið var að  auglýsa meðlæti , kökur og  tertur í  fermingarveislur. Hámarki  náðu lýsingarnar ,þegar  boðið var upp á  sálmabók úr marsipani til að hafa með kaffinu eftir  ferminguna. Mikið var gert úr fegurð bakkelsisins og   sjálfsagt hefur bragðið verið  eftir því.

Hvað næst?  Biblía á  borðum fermingarbarna með bláberjum og þeyttum rjóma !!!!!!

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>