Category Archive: Skrifað og skrafað

Molar um málfar og miðla 528

  Margir  fréttaskrifarar eiga  í erfiðleikum með  áhrifssagnir. Þetta dæmi er af pressan.is (10.002.2011)  Krabbameinssamtök í Danmörku vilja útrýma með öllu reykingar á vinnustöðum, … Samtökin vilja útrýma reykingum, ekki reykingar eins og pressupenninn skrifar.   Villandi myndskreyting var  í upphafi  frétta Stöðvar tvö (09.02.2011), þegar birt var mynd af  þotum Icelandair í Keflavík með  frétt …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 527

Í  íþróttafréttum Ríkissjónvarps (08.02.2011) var talað um að brúa  mun. Málvenja er að tala um að  brúa  bil.  Bilin á að brúa, heitir  ævisaga Halldórs E. Sigurðssonar fv.  þingmanns og ráðherra.   Það var ónákvæmt orðalag hjá  Agli Helgasyni í Kiljunni að    blaðamaður Guardian hefði verið rekinn frá  Rússlandi. Hið rétta er , að  Luke Harding  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 526

Sumir hafa tamið sér að setja hikorð inn í  næstum hverja setningu. Algeng hikorð eru, hérna, sko, þú veist,svo aðeins þrjú dæmi séu nefnd. Heldur er þetta  hvimleitt  fyrir þann sem hlustar. Í  morgunútvarpi  (08.02.2011) heyrði  Molaskrifari  til konu, sem  sagði  þú veist   í hverri setningu og stundum oftar en einu sinni.   Sennilega veit hún …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 525

  Dómgreindarleysi hjá  fréttastofu Ríkisútvarpsins  að taka  alvarlega  marklaust  blaður  Samfylkingarþingmanns í Silfri  Egils um að hann  sé  reiðubúinn að  mynda  nýja  ríkisstjórn!  Þetta þótti fréttnæmt í sexfréttum (06.02.2011). Einstakir þingmenn hafa ekkert umboð til stjórnarmyndunar, ekki einu sinni  í Silfri  Egils.    Góður Landi í Ríkissjónvarpinu á sunnudagskvöld (06.02.2011). Prýðilegur var  þáttur  þeirra  Ara Trausta …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 524

Það er lofsvert hve vel fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur gengið fram í því að upplýsa glæpsamlegt framferði ýmissa forráðamanna og stjórnenda sparisjóða. Hrós fyrir það. Framferði og sjálftaka þessara manna kostar skattgreiðendur milljarða. Á hverjum degi erum við upplýst betur og betur um framferði þessara hvítflibbaþjófa. Furðulegt að þeir skuli enn ganga lausir. Sparisjóðurinn Byr fékk …

Lesa meira »

Viskíið flýtur

 Þegar ég hafði lokið við  fylgjast með Barnaby lögregluforingja  leysa flókna morðgátu (honum tekst það alltaf !) í danska  sjónvarpinu í gærkveldi  (05.02.2011)  kíkti ég á BBC One. Svona til að  fullnægja fréttafíkninni fyrir svefninn. Allt  sat við  sama í Egyptalandi. Við hliðina á BBC One á skjálistanum er  BBC Alba, þ.e BBC Skotland. Alba er …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 523

  Rás eitt er eina  réttlætingin fyrir  tilvist Ríkisútvarpsins, eftir að  Ríkissjónvarpinu var breytt í vídéóleigu og íþróttarás. Á Rás eitt er margt prýðilegt   að finna bæði í tónum og töluðu máli. Fjölmargir vandaðir þættir eru þar á boðstólum.   Að morgni laugardags  (05.02.2011) hlustaði Molaskrifari á   tímabæran og fróðlegan , endurtekinn, Víðsjárþátt um Egyptaland.  Ódulbúið …

Lesa meira »

Ungir píanósnillingar í Texas

Virtasta tónlistarkeppni  ungra píanóleikara í veröldinni er áreiðanlega  Van Cliburn keppnin, sem fram fer  fjórða hvert ár  í Fort Worth í Texas. Keppnin er kennd  við bandaríska  píanóleikarann Van Cliburn (74) sem bar sigur úr býtum í Tsjækovskí- einleikarakeppninni í Moskvu 1958.  Þar  lék hann  píanókonsert Tsjækovskís nr. eitt  og Rakmaninoff konsert. Hann varð þjóðhetja í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 522

Enn eitt  dæmið um villandi fréttaflutning Morgunblaðsins  var  á mbl.is (05.02.2011). Þar sagði í  myndatexta: Vilja þjóðaratkvæði. Yfir var mynd  af þeim Bjarna  Benediktssyni og Kristjáni Þór  Júlíussyni  þar sem þeir héldust í hendur og  fögnuðu  sigri. Í fréttinni kom fram, að  Kristján Þór   var fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu  en Bjarni Benediktsson vildi ekki útiloka þjóðaratkvæðagreiðslu. Hálfsannleikur. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 521

Ferðaþjónustan fullsödd af dýrum  mat , er fín   forsíðufyrirsögn í Fréttablaðinu (004.02.2011). Molaskrifari las það einhversstaðar, að vefurinn ring.is  hafi verið tilnefndur til  íslensku vefverðlaunanna. Það  þykir Molaskrifara skrítið. Orðið  ring er  nefnilega ekki  íslenska  heldur enska.  Það er ekkert til ,sem heitir um tuttugu og níu  manns eins og sagt var í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (03.02.2011). Tuttugu og níu …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts