Category Archive: Skrifað og skrafað

Molar um málfar og miðla 256

Ríkisútvarpið á hrós skilið fyrir umfjöllun um íslenskt mál á fimmtudags- og föstudagsmorgnum í morgunþætti Rásar eitt, Víðu og breiðu. Sömuleiðis ber að hrósa Morgunblaðinu fyrir að birta nú vikulega pistla í Lesbók um íslenska tungu. Þetta er allt af hinu góða. Svona breytist tungan: „Það verður bara ekki gefist upp“, sagði framhaldsskólanemi í fréttum …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 255

„Meðlimir“ eru lífseigir. Svona var tekið  til orða á  mbl.is (08.02.2010) : „Þetta er í fyrsta skipti sem Rússar kaupa vopn frá meðlimi Atlantshafsbandalagsins, Nató.“  Rússar  voru að kaupa  herskip af Frökkum.  Eðlilegt hefði verið að segja: Þetta er í fyrsta skipti sem Rússar kaupa herskip af Natóríki.    Í  hádegisfréttum  RÚV (08.02.2010) var  sagt …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 254

Það er arfavitlaus ráðstöfun yfirstjórnar RÚV að skera þættina Viðtalið og Fréttaaukann niður við trog. Þessir þættir hafa verið vandaðir og þeir eru ekki það sem kallast getur dýr dagskrárgerð. Þetta er ódýrt efni. Kannski fáum við í staðinn fleiri þætti á borð við „Desperate Houswives“ og „Army Wives“. Næst fáum við kannski „TV Wives“? …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 253

Ein hallærislegasta auglýsing, sem Molaskrifari hefur er lengi séð, er frá Sjóvá. Þar er talað um að viðskiptavinbir fái sendar ávísanir og sagt „Sjóvá- ávísun á ánægju“. Þetta er nú eiginlega hámark skrums og hræsni .Ríkissjóður er nýbúinn að greiða á annan tug milljarða til að bjarga Sjóvá. Eigendurnir höfðu nefnilega tæmt bótasjóð félagsins sjálfum …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 252

Þeir sem koma fram í fjölmiðlum, hvort sem það eru fréttamenn, stjórnmálamenn eða aðrir, eiga að temja sér skýran framburð. Meðan Frjálslyndi flokkurinn var og hét , var algengt að heyra forystumenn hans tala um Frjáslda flokkinn. Í morgun (04.02.2010) sagði útvarpsstjóri Útvarps Sögu: .. áður en við heyrum hljóstina, – hljómsveitina , átti það …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 251

Í hádegisfréttum RÚV (03.02.2010) var fjallað um fjárhagsvanda Álftaness. Talað var um að koma þyrfti í veg fyrir fólksflótta úr byggðarlaginu, en þess sé farin að berast merki nú þegar. Eðlilegra hefði verið að segja, að þess sæjust merki nú þegar. Í sömu frétt var talað um að setja á sérstaka stjórn yfir sveitarfélaginu. Eðlilegra …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 250

Úr mbl. is. (01.02.2010) Þetta er sem sagt gamli Gullfoss sem við endurbyggðum til þess að sýna fólki hvernig sjómennirnir komu niður Gullfossi á þessa gömlu trébryggjur. Komu niður Gullfossi á þessar gömlut trébryggjur ? Ólafur segir mikið fjáraustur sigursælla frambjóðenda… Þetta er úr dv.is (02.02.2010). Fjáraustur er karlkynsnafnorð. Þessvegna hefði þarna átt að standa …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 247

Sú árátta helst í fréttum flestra miðla að segja: …samkvæmt þessum og samkvæmt hinum. Í fréttum Stöðvar tvö (26.01.2010) var sagt: … frestun kosningadags á samkvæmt Steingrími ekki að hafa….. Þessi tískuambaga breiðist hratt út og heyrðist einnig í hádegisfréttum RÚV (29.01.2010) þegar vitnað var til orða forstjóra Íslandspósts og sagt: Samkvæmt Ingimundi, enskan skín …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 246

 Í  sjónvarpsfréttum  RÚV (25.01.20210) var sagt um álverið í Straumsvík:…það rafmagn sem fyrirtækið hafði tryggt sér  hefur verið  beint annað. Rafmagnið hefur ekki verið beint annað, heldur hefur rafmagninu verið beint  annað.  Í  fréttum  sama miðils, sama kvöld,  af frosthörkum í  Rúmeníu var sagt… hefur á annan tug manna  orðið úti. Málkennd  Molaskrifara er sú ,að hér   …

Lesa meira »

„Svona gera menn ekki“

 „Svona gera menn ekki“, sagði Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra úr ræðustóli á Alþingi. Setningin varð samstundis fleyg. Mig minnir að umræðan hafi verið um skattlagningu launa blaðburðarbarna, – upphæðir sem  skiptu  ríkið litlu en börnin miklu.  Sá sem þetta skrifar gerir ævinlega athugasemd, þegar hann sér heilbrigt fólk leggja í stæði, sem eru sérmerkt fötluðum, …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts