Á baksíðu Fréttablaðsins (26.01.2010) er auglýsing frá fyrirtækinu Svefni og heilsu,sem selur rúm og dýnur. Þar er talað um íslenska botna, rúmbotna. Gott og gilt. En svo er talað um höfuðgafla. Það orð hefur Molaskrifari ekki heyrt og finnur ekki í tiltækum orðabókum. Á íslensku er talað um höfðagafl, höfðagafla , þótt ekki sé það …
Category Archive: Skrifað og skrafað
Molar um málfar og miðla 244
Ekki þykist Molaskrifari vera nein tepra. Hann á hinsvegar erfitt með að átta sig á því hvaða erindi klámbrandarar að hálfu á ensku eiga í dagskrá Morgunvaktar Rásar tvö á RÚV. Molaskrifara fannst vel að orði komist í mbl.is er sagt var frá því að þotan,sem nauðlenti svo giftusamlega á Hudsonfljóti við New York, væri til …
Molar um málfar og miðla 243
Margt er Ríkisútvarpinu mótdrægt um þessar mundir. Langvinn og neikvæð umræða um ofurlaun og hlunnindi á tímum aðhalds og sparnaðar í samfélaginu og nú koma uppsagnir og góðir þættir eru skornir við trog. Það er einkennilegt að horfa upp á að góðu og reyndu fólki skuli sagt upp, en aðrir sem betur væru fallnir til annarra starfa …
Molar um málfar og miðla 242
Það var einkar ósmekklega og óheppilega að orði komist í frétt um harmleikinn á Haiti í fréttum Stöðvar tvö (22.01.2010) þegar fjallað var um fjöldagreftrun látinna og sagt: Yfirvöld segja að þau hafi þegar afgreitt um sjötíu þúsund lík. Það er ekki hægt að tala um að afgreiða lík. Molaskrifari fékk boð (21.01.2010) í tölvupósti …
Molar um málfar og miðla 241
Í DV (20.01.2010) segir: Á innanhússpóstvef Háskóla Íslands lýsa kennarar ósætti vegna ráðningar…. Molaskrifari hefur alltaf talið að orðið ósætti þýddi ósamkomulag,ágreiningur, en hér virðist orðið notað í merkingunni óánægja. Nema átt sé við ósætti innan kennaraliðsins. Hinsvegar hefði mátt segja að kennarar væru ósáttir við ráðningu.. Í huga skrifara er ósætti ekki rétta orðið í …
Molar um málfar og miðla 240
Í fréttum Stöðvar tvö var (15.01.2010) var fjallað um viðurkenningu sem veitingahús hafði fengið og sagt: … eina hæstu viðurkenningu, sem veitingahús getur hlotið. Þarna hefði að líkindum verið betra að tala um eina æðstu viðurkenningu… Hljóðbútur af atvikinu má nálgast í fréttinni,sagði í frétt í dv.is (19.01.2010). Hljóðbút af atvikinu má nálgast í fréttinni …
Molar um málfar og miðla 239
Í ferðamálariti las Molaskrifari um sveitaveg ,sem sagður var kræklóttur. Fannst þetta einkennilega til orða tekið , hafði ekki heyrt orðið kræklóttur notað, nema um tré. En orðabókin segir: Kræklóttur, – margboginn ,hlykkjóttur. Svo lengi lærir sem lifir. Oft er ruglað saman forsetningunum af og að . Það henti Jónas Kristjánsson í bloggi hans (16.01.2010) …
Molar um málfar og miðla 238
Eftirfarandi stendur á pressan.is (14.01.2010): Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor, segir rangt að hengja Dani út sem andstæðinga Íslendinga í Icesave-málinu. Molaskrifari verður að játa, að hann hefur aldrei heyrt talað um að hengja fólk út , hvað þá heilu þjóðirnar. Móðir mín hengdi út þvott til að þurrka hann. Það var löngu fyrir tíma rafmagnsþurrkara. Talað er …
Molar um málfar og miðla 237
Illa gengur að losna við amböguna síðasta sumar. Í hádegisfréttum RÚV (íþróttafréttum 14.01.2010) Var talað um síðasta sumar , þegar samkvæmt íslenskri málvenju hefði átt að segja: … í fyrra sumar. Enn heldur fréttamaður RÚV áfram að kalla Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg stjórnarráðið. Getur ekki málfarsráðunautur RÚV skýrt það út fyrir manninnum að stjórnarráðið er …
Molar um málfar og miðla 236
Í hádegisfréttum RÚV (12.01.2010) var talað um að gera eitthvað upp á sitt einsdæmi. Einsdæmi er atburður sem telst einstæður, á sér ekki hliðstæðu. Að gera eitthvað upp á sitt eindæmi er hinsvegar að gera eitthvað af eigin hvötum, einn og óstuddur eða á eigin ábyrgð. Landlæknisembættið hefur opinberlega varað við því sem kallað er kraftaverkaefni …


